Archived entries for travel

2008.07 Italy – Umbria

Þá var förinni heitið til Úmbríu. Nánar tiltekið til bæjar sem heitir Foligno. Þessi bær hefur svo sem ekki margt að bjóða svo sem í túristalegu tilliti. Tiltölulega lítill bær og gamla miðbænum innan bor­gar­múranna gömlu ekki vel við haldið. Gamla kirk­jan er svo sem á sínum stað og stóra torgið en ekki þessi gamli bragur á öllu. Fullt af nýrri byg­gingum frá ýmsum tímum og heil­dar­bragurinn ekki sér­lega heil­landi. Con­tinue reading…

2008.07 Italy – Róm

rometrajan

Þá var förinni heitið til Rómar. Við kvöd­dum Mon­tal­cino um morguninn, gerðum upp reikninginn og ókum af stað. Leiðin er um 160 kílóme­trar og eins og vanalega er ekkert mál að rata milli borga. Við vorum svo með útprent af Google hvernig ætti að komast að hótelinu innan Rómar. Con­tinue reading…

2008.07 Italy – Montalcino

montalcinosvalir

Um ellefu leytið vorum við tilbúin að leg­gja í hann og bíllinn okkar var sót­tur í bílageym­sluna. Veg­alengdin til Mon­tal­cino er tæplega 300 kílóme­trar. Við höfðum nægan tíma. Það er áberandi minni umferð en fyrir ári síðan og ekki laust við að ekið sé hægar. Það segir til­finningin að minnsta kosti. Kreppan?

Con­tinue reading…

2008 Italy – Parma

2008.07_Italy_Parma - 07 Nú er ég lentur í sumar­fríi. Og enn eina fer­ðina er það Ítalía. Lík­lega er þetta í níunda skipti sem við förum til Ítalíu. Ég ætla að skrá fer­ðina niður eftir því sem tími gefst til en það hefur oftast reynst þrautin þyn­gri. Oftast er ekki mikill tími aflögu til skrifta og inter­net­sam­bandið getur verið svona og svona.

Fer­ðin hófst með flugi frá Keflavík til Mílanó. Einn kos­turinn við þessa flugferð var sá að flugið var ekki fyrr en klukkan 10 að morgni. Þá þurfti maður ekki að fara á fætur um miðja nótt til þess að koma í tæka tíð á flugvöllinn. Reyn­dar eru fer­ðalög með flugvélum í seinni tíð farin að taka allt of lan­gan tíma þrátt fyrir flýti­innskráningar á flugvöl­lunum. Con­tinue reading…

2007 Ítalía : Allir vegir lig­gja til Rómar

Þá er það Róm sem allir verða að sjá áður en þeir deyja. Við vorum í tæpa viku í Róm fyrir fjórum árum, þá í byr­jun október. Þan­nig að við erum búin að skoða flestar af þeim min­jum og byg­gingum sem við höfum áhuga á að kyn­nast. Þó alls ekki allar. En það sem hefur staðið í tvö þúsund ár eða meira er ekki alveg á leiðinni burt, svo margt af þessu má bíða um stund. Con­tinue reading…

2007 Ítalía : Napolí og Caravaggio

Hótelið í Napólí heitir Hotel Car­avag­gio. Þetta er alveg príðishó­tel á okkar mælik­varða en við erum svo sem ekkert kresin. Stá­tar fjórum stjör­num. Ég skil nú ekki alveg þessa stjör­nugjöf á hótelum, en mig min­nir að fjórða stjar­nan sé fyrir míníbarinn. Ég vildi nú frekar hafa tóman kæliskáp til afnota. Con­tinue reading…

2007 Ítalía : Pom­pei og Napólí

Við kvöd­dum Amalfí um níu­leytið í morgun. Við erum alger­lega búin að taka staðinn í sátt.

Þótt hann kraumi af fer­ðamön­num á daginn, bæði á ströndinni og í bænum sjál­fum lét­tist mjög strau­murinn um og eftir sex – sjö á kvöldin. Con­tinue reading…

2007 Ítalía : Michael og Monica

Þetta er síðasti dagurinn okkar á Amal­fiströndinni og við ákváðum að gera sem allra minnst í dag. Linda kom sér fyrir á ströndinni en ég vap­paði á kaf­fi­hús og að því loknu á netkaf­fið. Con­tinue reading…

2007 Ítalía : Capri

Við Linda erum ekki mikið fyrir að fara á svokallaðar tur­ist attrac­tions. Við höfum því ekki enn komið til Feneyja þótt það sé enn á dagskrá eða séð Ufizi safnið í Flórens þótt við höfum mar­goft komið til þeir­rar bor­gar. Con­tinue reading…

2007 Ítalía : Ravello

Í gærkvöldi röm­buðum við um Amalfi bæinn og skoðuðum það sem blasir við fer­ðamön­num. Borðuðum við aðal­gö­tuna eins og fór­nalöm­bum túsis­mans ber að gera. Linda ful­lyrðir að hvítvínið hafi verið vatnsþynnt, en maturinn var alveg ágæ­tur og verðið svo sem ekkert upp­sprengt. Con­tinue reading…



Copyright © 2004–2009. All rights reserved.

RSS Feed. This blog is proudly powered by Wordpress and uses Modern Clix, a theme by Rodrigo Galindez.