Dagatal 2010

ical2009

Mar­gar heim­sóknir eru á hver­jum degi á font.is, sérstak­lega á þes­sum tíma árs eru vegna þess að orðin dagatal, dagatöl eða almanak hafa verið sett í leit á net­inu og þessi vefur komið upp.

Reyn­dar er það þan­nig að þetta er lang mest sótta íslen­ska síðan hjá mér ásamt auglýsin­gastærðunum. Þær sem eru skri­faðar á ensku toppa samt eðlilega allt.

Fyrir þá sem hafa notað þessa tengingu vil ég minna á að stilla á Refresh All vikulega því að svona almanak er í stöðu­gri uppfærslu. Eins ef uppvíst verður um villu er nauðsyn­legt að almanakið uppfærist ef ég þarf að leiðrétta eitthvað.

Ekki má gleyma því að þótt þetta sé gert í iCal og fyrir iCal áskrift virkar þetta líka sem almanak í Entourage og Google Calendar.

Ég bjó til eitt almanak í viðbót sem var hugsað fyrir sjál­fan mig, en það er dagskrá Sin­fóníuhljómsveitar Íslands. Ákvað að senda það út á netið ef ein­hver hefði gagn af því líka.

Og fyrir þá sem ekki nenna að lesa grein­ina en vilja teng­jast þes­sum almanökum eru hlekkirnir hér:

Íslen­skt almanak með hátíðis­dögum, frídögum, jólasveina­tali og ýmsu öðru sem ég hef tínt til héðan og þaðan.

Viku­tal viðskip­talíf­sins, fyrsti mánudagur hver­rar viku merk­tur með vikunúmeri samkvæmt ISO staðli.

Learn it all.

Share