Námskeið í Illustrator

Dagana 8., 9., 15. og 16. september 2009 verð ég með námskeið í Illustrator á vegum Iðunnar, fræðsluseturs / prenttæknisviðs. Námskeiðið verður haldið í tölvuhúsi Tækniskólans í stofu 621 og telst vera 24 kennslustundir. Verð fyrir aðila Iðunnar er 11.180 kr.
Hérna er lýsingin á námskeiðinu eins og hún kemur frá Iðunni:
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lágmarksþekkingu á Illustrator og hafa kynnst forritinu en vantar leiðsögn til frekari afreka. Námskeiðið er ætlað grafískum hönnuðum, grafískum miðlurum, prentsmiðum, teiknurum og öðru fagfólki í uglýsingagerð og hönnun.
Þátttakendur afla sér grunnþekkingar á notkun Illustrator sem nýtist þeim við að teikna í forritinu, setja upp myndir og texta á síðu og verklag við notkun. Kenndar eru flýtiaðgerðir og flóknari verkefni kynnt í forritinu.
Þátttakendur geta þjálfað leikni sína í grunnatriðum Illustrator og leyst einföld verkefni á vinnustað og byggt upp hæfni sína með frekari þjálfun í notkun Illustrator að námskeiðinu loknu.
Þótt ég sé með áróður fyrir mínu námskeiði hérna hvet ég alla til að kynna sér þau námskeið sem í boði eru á vefsíðu Iðunar.


Ég hef verið beðinn um að leiða námskeið eftir áramótin, Illustrator 2. Það er ætlað þeim sem hafa verið að nota Illustrator eitthvað, oftast vegna vinnu sinnar, en vantar spark í rassinn til þess að halda áfram.
Svona námskeið var haldið síðast liðið vor og ég komst að því fljótlega að ég þurfti að fara í mikið af grunnatriðum með nemendunum. Nú veit ég ekki hvort Illustrator 1 námskeið fyrst verði gert að skilyrði til þess að fara á þetta seinna námskeið. Það er ekki mitt að ákveða það. En ég mun ekki mæla með því að svo verði.
Ég hef það þannig á námskeiðum að ég fer í grunnatriðin. Ef nemendur vita talsvert, komumst við lengra. Ef þeir vita lítið þá komumst við einfaldlega styttra.
Mig langar sérstaklega að fá á námskeiðið svona Die-Hard FreeHand fólk og hjálpa því yfir í Illustrator. FreeHand kemur ekki aftur og stöðugt þrengir að því úr öllum áttum.
Vonast til þess að sjá fullt hús.