Twitter — Best Twitter Advice Ever link

Twitter er enn eitt fyrirbærið í flokki svokallaðrar Social Media eða samskiptamiðla á netinu. Við fyrstu sýn virðist Twitter vera afskaplega lítið og ómerkilegt. Bara stöðutilkynning: Hvað ertu að gera núna? Svipað og stöðutilkynningin í Facebook og hámark stafa er 140 í hvert skipti.
En er dálítið meira í þessu. Twitter er mun opnara en til dæmis Facebook. Það er að segja alveg opið. Allt sem maður setur í stöðureitinn fer út á netið og hver sem er getur lesið það. En það nennir auðvitað enginn að lesa það allt saman. Þess í stað velur maður sér einhvern eða einhverja sem maður kýs að fylgjast með eða elta eins og það er kallað. Það geta verið vinir sem eru á Twitter eða einhverjir sem maður veit að eru að skrifa eitthvað sem maður hefur áhuga á. Frægt fólk er vinsælt að elta.
Á móti gæti maður verið valinn til að elta af einhverjum, gjarnan af þeim sem maður valdi sjálfur. Eða einhver sem maður þekkir og þá er hægt hafa bein samskipti við viðkomandi. Oftast og eðlilegast er að maður elti einhverja sem eru á svipaðri línu og maður sjálfur hvað áhugamál varðar, vinnu eða eiginlega hvað sem er. Hönnun, kynhneigð, tíska… bara að nefna það.
Fólk þarf ekki endilega að setja inn hvað það er að gera í augnablikinu. Hverjum er ekki sama um það til lengdar? Reyndar getur það verið í sumum tilfellum ágætt ef viðkomandi setur það fram á skemmtilegan hátt. Það er hægt að nota reitinn til þess að koma hvaða skilaboðum sem er í loftið. Mikið er til dæmis sent af slóðum á eitthvað á netinu á greinar og fréttnæmt efni og þess vegna skiptir máli hverja maður er að elta.
Sem dæmi elti ég mikið fólk sem er að skrifa um svipaða hluti og ég. Kíki á hverjum það fylgist með, bæti einhverjum við og svo framvegis þar til maður er kominn með skemmtilega blöndu af fólki sem miðlar efni sem maður hefur áhuga á.
Þetta er náttúrulega alger tímaþjófur, en hvað er ekki tímaþjófur? Sjónvarp? Sími?
Ég ætlaði að skrifa ítarlegri grein um Twitter, en í miðjum klíðum – einmitt hér, en rakst þá á grein sem slær út öllu sem ég hafði hugsað mér að hripa saman. Á AdventCreative er hreint ágætis grein um Twitter sem hentar þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin. Greinin lýsir þessu öllu mjög vel og er með fullt af fínum leiðbeiningum um hvernig er best að hreiðra um sig í þessum skemmtilega heimi.
Greinina má nálgast hér.
English:
In short: I was going to write an article about Twitter, which is popular social media you probably have heard of. But as I was starting to write it I bumped into a great summary that beats everything I had in mind of writing.
Check out this great article on adventcreative.com It will probably tell you everything you wanted to know and more, about Twitter. Then remember to follow me .

