Photoshop leturáferðir

Það á stundum ágætlega við að leika sér með að setja áferð á letur með Photoshop. Eins getur það verið verulega hallærislegt á köflum.
Hvað sem því líður langar mig að benda á ágætis stökkpall, samansafn af greinum um hvernig er hægt að setja mismunandi áferð á letur. Það besta í þessu er að vel flestar aðferðirnar kenna manni ýmsar brellur í Photoshop sem maður vissi kannski ekkert um. Það er því alveg þess virði að prófa bara til að læra.
Greinin sem inniheldur alla tenglana er hér.

