Illustrator : Penslar

Í Illustrator er skemmtilegur og gagnlegur pensill (Paintbrush Tool) Ef þú smellir á stafinn B velst pensillinn.
Með penslinum er hægt að teikna/mála fríhendis með ýmsum áferðum sem líkja eftir teikniáhöldum eins og til dæmis kolum, vatnslit, olíumálningu, tússi og hvað eina.
Þessar áferðir eða burstar eru geymdir í panel sem heitir Brushes (Window>Brushes eða bara slá á F5). Það er mismunandi hvað hleðst inn af þessum pensiláferðum en ef þér finnst það eitthvað lítið getur þú hlaðið inn fleirum því það er slatti sem fylgir með Illustrator. Hægt er að hlaða fleiri áferðum inn með því að fara í hliðarvalseðil panelsins og þar í Open Brush Library…
Fyrir þá sem ekki hafa kynnt sér penslana fyrr er rétt að benda á að notkun á þessum pensiláferðum er ekki bundin eingöngu við að pensiltólið sjálft. Hægt er að velja hvaða teiknaða form eða línu í Illustrator og velja svo svo áferð úr panelnum og setja á.
Ég hef verið talsvert spurður um hvar hægt sé að ná í fleiri áferðir. Mikið er sett á netið af ókeypis pensiláferðum og erfitt að meta hvað hentar hverjum. Það væri samt ágætt að smella til að byrja með á þennan tengil en hann kemur manni á síðu hjá vector.tutsplus.com sem hægt er svo að fara í allar áttir, skoða og ná sér í. Þessir penslar eru allir ókeypis.
Fyrir þá sem vilja enn meira er ágætt að benda á að skoða hvaða lykilorð koma fyrir á þessum síðum og nota sem leitarorð á Google eða annarri leitarvél. illustrator brush free myndi koma manni vel áleiðis.

