FontExplorer X Pro

FontExplorer X Pro leturstjórnarforritið er komið út.
Slæmu fréttirnar eru að forritið er ekki lengur ókeypis. Það er á tilboði á 39 evrur út febrúar en hækkar þá í einar 79 evrur. Hægt er að prófa það í 30 daga áður en keypt er. Ég mæli með að ef einhver sem er með eldri útgáfuna taki afrit af letursafninu í User/FontExplorerX, því það er aðlagað að nýju útgáfunni. Ef síðan er hætt við kaupin er vissara að hafa gamla safnið við hendina.
Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að forritið gengur við Adobe Creative Suite 4 og nýjasta Quark 8 ásamt fyrri útgáfum og á Tiger og Leopard. Aðrar góðar fréttir eru að það er líka komin netþjónsútgáfa sem hentar stærri fyrirtækjum þar sem letur þarf að vera í góðu samræmi innbyrðis. Ég hef ekki en fengið verðið í þann pakka en bæti því við þegar þar að kemur. Það fer eftir fjölda tölva sem forritið á að þjóna.
Þegar FontExplorer X Pro er sett inn og ræst nýtir það allar stillingar sem fyrri útgáfa hefur verið stillt á. Preference stillingar eru að auki heldur auðskyldari en áður var. Að öðru leyti sýnist mér forritið ekki neitt rosalega breytt en þó eru nokkrir smáhlutir sem hafa slæðst með.
Eitt af því sem réttlætir verðið er að nú fylgir stuðningur frá Linotype, það er hægt að senda inn beiðni um aðstoð ef eitthvað bjátar á. Þetta var ekki með fyrri útgáfum. Verðið segir hugsanlega að sala á letri í gegnum innbyggðu búðina í forritinu hafi ekki skilað nógu til að standa undir þróunarkostnaði.
Aðrar upplýsingar er hægt að nálgast á síðu forritsins og í PDF bæklingi um forritið. Ef áhuginn er sérstaklega á nýjungunum er þær að finna á Key Freatures síðunni.
Aðrir valkostir í stöðunni fyrir þá sem nota mikið af letri eru helst Suitcase og FontAgent Pro en allmargir eru kallaðir í þessum efnum en fáir útvaldir. Eitt af þeim forritum sem ætlar sér sneið af kökunni er FontCase en þeir eiga nokkuð í land enn til að teljast fullgildir keppendur. Spennandi að fylgjast með því hvernig þeim gengur að þróa forritið.
Viðbót:
Server útgáfan er boðin í minnstu útgáfu fyrir 20 notendur á 6000 evrur á ári. Talsvert fé, en þess ber að gæta að inni í verðinu er aðgangur að öllu OpenType letri í ITC® Library (OpenType® Edition Version 1), Monotype® Library (OpenType Edition Version 1) og Linotype® Originals (OpenType Edition, Version 2). Rúmlega 4000 fontar.

