Ecofont – vistvænt letur
Skemmtileg og frumleg – og umhverfisvæn aðferð til þess að spara prentsvertu er að nota þetta letur, ecofont.
Það væri eitthvað skrítið ef maður skipti alveg yfir í þessa einu leturgerð en hugmyndin er eftir sem áður mjög sniðug og metnaðarfull. Það er hollenska hönnunarstofan Spranq sem bjó letrið tilog dreifir því ókeypis á sérstakrri síðu sem helguð er letrinu.
Letrið er byggt eða unnið ofan í Verdana sem allir eru með á tölvunum sínum og að því er segir á vefsíðunni hentar það best í 9–10 punkta stærð en í þeim stærðum sér maður varla mun á því og fylltu letri. Því miður er bara komin Regular útgáfa af letrinu en mig grunar að aðrar þykktir muni fylgja í kjölfarið.
Þá er bara ná í letrið og prófa sig áfram. Eins og sést eru íslenskir stafir í góðu lagi í letrinu.


