Bestu letrin 2008

bestuletrin2008

Það hlý­tur alltaf að vera spurn­ing um smekk þegar valið er besta þetta og besta hitt, sama hvort það á við um best klædda fólkið eða besta letrið.

Í kringum áramót er keppst við að búa til svona lista og nú hefur fyrsti listinn yfir bestu letrin birst.

Eflaust má deila um þen­nan lista og verður hver og einn að eiga það við sig. En engu að síður eru flest eða jafn­vel öll af þes­sum letrum vel að því komin að vera á svona lista en eflaust mættu fleiri komast að.

Svo vonar maður að fleiri slíkir lis­tar verði bir­tir. Þó það væri ekki nema einn í viðbót, en frá árinu 2004 hefur typographica.org lista af þessu tagi, til dæmis fyrir 2007. Linkarnir á þes­sar síður eru á forsíðu vef­sins. Ekki má hel­dur gleyma að mörg stærri leturg­erðarhúsin birta sam­bæri­lega lista en þeir byg­gja eðlilega að mestu á því letri sem þeir selja.

Gríðar­leg vinna fer í að búa til svona lista en það er áæt­lað að um 1800 ný letur séu sett á markað á hverju ári og er það lík­lega ástæðan fyrir því að fáir leg­gja í að setja svona lagað saman nema helst Stephen Coles hjá typographica.org.

Share