Gleði­leg jól

gledilegjol2008

Ég óska öllum þeim sem hafa litið við hér á font.is, gleði­le­gra jóla og farsæls komandi árs.

Það er nokkuð ljóst að næsta ár verður mör­gum þungt í skauti. En þegar maður hugsar til þes­sara mála sem skollin eru á okkur, er þá bara ekki ágætt eftir allt að fara í geg­num þessa hrein­sun? Nú getum við farið að huga að þeim gildum sem hafa gert okkur að þeirri þjóð sem við erum, gildum sem hafa vil­jað gley­mast í dansinum í kringum gullkálfinn.

Sameinumst um að láta byrðarnar ekki sliga félaga okkar og vini og hor­fum fram á veginn.

Ef ég má gerast svo lítil­lá­tur að gefa ein­hver ráð fyrir næsta ár er það stutt og ein­falt: Læra. Með því að bæta við kun­náttu sína standa menn betur að vígi í veg­fer­ðinni sem fra­mun­dan er og heildin verður jafn­framt því sterkari ef liðs­menn eru stöndugri.

Gleði­leg jól. Heyrumst á næsta ári.

Share