Apple : Stóra rafhlöðumálið

icalalarmbattery

Rafh­löður í fartölvum virðast leg­gja upp lau­pana langt fyrir aldur fram hjá mör­gum. En svo virðast aðrir geta verið með sömu rafh­löðu ein­hver ár þrauta­laust. Hver gæti verið skýringin?

Auðvi­tað gerist það stun­dum að rafh­löður eru hrein­lega gal­laðar. Oftar en ekki getur þó eigandi tölvun­nar fundið ástæðuna fyrir léle­gri fram­mistöðu rafh­löðun­nar hjá sér sjál­fum – ef hann vissi hvað í hegðu­n­armyn­strinu gal­lann er að finna.

Tölvu­rafh­löður (símarafh­löður og fleira sam­bæri­legt) eru stykki með vökva inní og ein­hver­jum efnum þar í bland. Nokkuð sem ég hef ekki frekara vit á. Hins vegar veit ég af dapurri eigin reynslu að þessi vökvi þarf að vera á stöðu­gri hreyfingu svo að rafh­laðan skili því sem hún var gerð fyrir í þann tíma sem henni var ætlaður.

Með hreyfingu er átt við að rafh­laðan þarf stöðugt að vera annað hvort að hlaðast eða afh­laðast. Ef sú er ekki raunin, kristal­last vökvinn í rafh­löðunni og það svæði sem þessi kristalla klumpur tekur nær ekki að taka þátt í raf­magns­fram­leiðs­lunni og heilsu rafh­löðun­nar hrakar. Áríðandi er að hafa í huga að með því að hafa tölvuna mikið í sam­bandi geg­num straum­breytinn reynir ekkert á rafh­löðuna – hún er í kyrrstöðu og kristal­lamyn­dun grasserar. [Ég lýsi þessu svona eins og ég sé að tala við leik­skólakrakka og þeir sem eru fróðari um tæknih­liðina á þessu gætu vel haft ein­hver­jar athugasemdir. Gjörið svo vel.]

Ég guðaði á inter­net­inu eftir nánari upplýsingum um hvernig maður ætti að bera sig að. Eftir nokkra skoðun leist mér best á það sem fannst á síðum Apple og hef haldið mig við það síðan ég keypti mér nýja rafh­löðu. Hérna er það í lau­flét­tri þýðingu:

  • Settu tölvuna í sam­band við straum­breytinn og láttu rafh­löðuna ná fullri hleðslu. Það kviknar þá á grænu ljósi á teng­inu við tölvuna.
  • Leyfðu tölvunni að vera tengda við straum­breytinn í svo sem tvo tíma svona – helst svolítið lengur. Ekki rjúfa sam­bandið. Þú getur notað tölvuna á meðan.
  • Taktu nú straum­breytinn úr sam­bandi og haltu áfram að nota tölvuna meðan hún keyrir á rafh­löðunni. Þegar lítið er eftir af hleðs­lunni kemur aðvörun um það á skjáinn.
  • Haltu áfram að vinna á tölvunni eða ley­fir henni að vera í gangi þar til hún sof­nar. Vis­taðu öll opin skjöl og slökktu á öllum for­ri­tum áður en töl­van sofnar.
  • Slökktu á tölvunni eða leyfðu henni að sofa í að minnsta kosti fimm tíma.
  • Tengdu nú straum­breytinn aftur við tölvuna og leyfðu rafh­löðunni að hlaðast að fullu. Þú getur notað tölvuna að vild á meðan, en pas­saðu að straum­breytirinn sé teng­dur við tölvuna allan tímann.

Apple mælir með því að þessi aðgerð sé framkvæmd ekki sjald­nar en á tveg­gja mánaða fresti – helst oftar. Til þess að minna sig á þetta er ágætt að smella á þen­nan tengil. Hann hleðst inn í iCal sem eftir það bir­tir svona spjald á skjánum hjá manni mánaðar­lega. Ónæðið er hægt að verðsetja með verði nýr­rar rafhlöðu.

Milli þes­sara aðgerða er hægt að vinna að vild með tölvuna tengda eða ekki. Eins og ég gat um áður bor­gar sig ekki að keyra tölvuna langtí­mum saman með straum­breyt­inum. Frekar að leyfa rafh­löðunni að puða við þetta. Ef maður er til dæmis alltaf að vinna á tölvunni væri hægt að hugsa sér að leyfa rafh­löðunni að falla niður í svona 20% hleðslu, setja þá straum­breytinn við, rjúfa aftur í 90–100%. Eit­th­vað svoleiðis. En fara svo í aðgerðina mánaðarlega.

Heil­s­u­far rafh­löðun­nar má skoða í Sys­tem Pro­filer (Applications/Utilities/System Pro­filer). Ein­nig er afbragð að vera með ókeypis wid­get (F12) sem heitir iStat Pro og fyl­g­jast með rafh­löðunni þar á myn­drænni hátt.

Hægt er að lesa það sem Apple segir um þetta meðal annars í þes­sum greinum:

Apple Note­books

Apple Porta­bles: Tips for max­i­miz­ing your bat­tery charge

Cal­i­brat­ing your computer’s bat­tery for best performance

Ein­nig ágætis pis­till um aðra hluti sem geta verið að eyða hleðslunni

Share