AI : Myndir í Illustrator tengdar eða innfelldar

Þegar mynd er sett inn í Illustrator með Place skipuninni er hægt að velja hvort myndin verði það sem kallað er Linked eða Embedded. Það mætti gjarnan kalla þetta að mynd sé tengd eða innfelld. Sjáum til hvort einhver geti vanið sig á það.
Ástæðan fyrir því að mér finnst tími til að fjalla aðeins um þetta er sá að ég verð tilfinnanlega var við að margir teiknarar geri sér ekki grein fyrir þessum mun þegar þeir setja myndir í Illustrator. Það sést best á því þegar maður fær í hendurnar skjöl þar sem myndir eru ýmist felldar inn eða tengdar eða nokkur skjöl þar sem sitt hvor aðferðin er notuð án sýnilegrar ástæðu. Við þetta má bæta að tvær leiðir eru til að sjá hvort mynd er tengd eða innfelld. Tengdar myndir eru með x milli hornanna þegar þær eru virkar en innfelldar ekki. Eins má sjá í Links panelnum að tengdar myndir eru með nafn en innfelldar nafnlausar og með sérstakt tákn.
Fyrsti staðurinn til þess að ákveða hvort mynd eigi að vera tengd eða innfelld er í glugganum sem opnast eftir að Place skipunin hefur verið valin. Munurinn á þessu tvennu er nokkur. Þegar mynd er tengd (Linked) sækir Illustrator forsýn af myndinni (Preview) og Illustrator skjalið sjálft helst í sömu stærð og það var áður en myndin var tengd við skjalið. Ef mynd er felld inn í skjalið (Embedded) verður myndin hluti af Illustrator skjalinu og þyngist sem því nemur. Eins megabæta Illustrator skjal með 30 megabæta mynd verður þannig um það bil 31 megabæt að stærð.
Báðar aðferðir hafa sína kosti og galla. Áður fyrr var meiri munur á þessum leiðum að því leiti að sumt var einungis hægt að gera við myndir sem voru felldar inn en í nýjustu útgáfunum er sáralítill munur á.
Einn helsti ókosturinn við innfelldar myndir er sá að vegna þess að hún er ekki tengd situr hún föst inni í Illustrator skjalinu og engar upplýsingar er hægt að fá um það hvað myndin hét upphaflega og því illgerlegt að finna upprunalega skjalið ef þarf að breyta henni á einhvern hátt. Tengd mynd er hins vegar alltaf fyrir utan skjalið og hægt að finna í Links panelnum hvar myndin er. Eins má tvísmella á myndina um leið og Option hnappnum er haldið niðri eða það sem er betra; hægri smella á bláa tengilinn efst til vinstri á Control panelnum velja einhvern af valkostunum þar. Sömu möguleika má nálgast í Links panelnum í útskots valblaðinu.
Afleiðing af framansögðu er gjarnan sú að maður situr uppi með Illustrator skjal með innfelldri mynd sem þarf að breyta og getur ekkert gert. Eða hvað? Jú, það er til leið og hún er svona:
- Opna Illustrator skjalið hvort sem það er .ai eða .eps
- Vista niður sem .ai skjal (Illustrator native) og passa að hakað sé við Create PDF Compatible File. Skjali lokað.
- Þá vindur maður sér í Photoshop: Open… opnar .ai skjalið
- Gluggi sem heitir Import PDF opnast. Glugginn er vanalega stilltur á að opna Pages (efst til vinstri í glugganum – sjá mynd). Stillt á Images. Þá birtist yfirlit yfir allar myndir sem eru í skjalinu.
- Nú opnast myndin sem valin hefur verið og hægt að breyta að vild og vista svo niður
- Myndin sett inn í Illustrator aftur og endilega velja að myndin sé tengd
Þessa aðferð má auðvitað nota líka til að veiða myndir út úr PDF skjölum til að vinna frekar með í Photoshop eða annað. En meginatriðið er að sá sem setji myndir inn í Illustrator skjal sé aðeins vakandi og fylgist með því hvað er að gerast.

