AI : Illus­tra­tor námskeið

aiwelcome

Dagana 3., 4., 10. og 11. febrúar 2009 verð ég með námskeið í Illus­tra­tor á vegum Iðu­nar, fræðs­luse­turs / prenttæknisviðs.

Þetta er kallað Illus­tra­tor II, það er, námskeiðið er ætlað þeim sem hafa undirstöðu í Illus­tra­tor en van­tar smá frið, tíma og leiðbeinanda til að tileinka sér for­ri­tið frekar. Farið verður í geg­num nýja möguleika í Illus­tra­tor en aðal áher­slan verður lögð á að pína nemen­dur til að skoða og nýta sér ýmsa eigin­leika for­ritsins sem munu spara þeim tíma og erfiði við vinnu sína strax að námskeiðinu loknu.

Mar­gir sitja fastir í sama far­inu ár eftir ár og vinna í Illus­tra­tor með þeirri þekkingu sem þeir hafa náð að skrapa saman en gefa sér ekki tíma til að þróa sig áfram. Halda jafn­vel að þeir kunni á Illus­tra­tor. Illus­tra­tor hefur þróast mjög síðustu ár og verður stöðugt betra for­rit. Því er það ekki seinna vænna að taka snún­ing á for­rit­inu og uppfæra sjál­fan sig í leiðinni.

Stefnt er að því að á námskeiðinu verði notuð nýjasta útgáfa Illus­tra­tor, CS4 en það þarf ekki að hræða fólk frá þótt það sé með eldri CS útgá­fur í vin­nunni. Vegna þess hve Cre­ative Suite for­ritin eru farin að vinna vel saman nýtist nánast allt sem farið verður í geg­num mun nýtast beint eða óbeint í öðrum for­ri­tum sem notuð eru á auglýsin­gasto­fum og prentsmiðjum í dag svo sem InDe­sign, Pho­to­shop og Flash.

Fólk eins og ég eyðir ómæl­dum tíma í að fyl­g­jast með þróun for­rita og verk­ferla og það væri mikil sóun ef allir færu þan­nig að. Með því að fara á námskeið er hægt að fleyta rjó­mann af þessu puði svona fólks á sköm­mum tíma og fyrir lítið fé.

Þótt ég sé með áróður fyrir mínu námskeiði hérna hvet ég alla til að kynna sér þau námskeið sem í boði eru á vef­síðu Iðu­nar. Það hefur sjal­dan verið boðið upp á eins fjöl­breytti úrval námskeiða og á næstu vorönn.

Share