TypoQuiz – jólaspilið í ár?

Komið er út nýtt spil, TypeQuiz, þar sem spurningarnar snúast um letur og leturþekkingu.
Spurningarnar eru byggðar á bókinni Detailtypografie eftir F. Forssmann og M. de Jong. Sá sem kann þá bók utan að myndi rústa keppendum. Bókin og eftir því sem mér sýnist spilið líka eru á þýsku þannig að hægt væri að keppa þeirri kunnáttu líka.
Höfundur spilsins er Susanne Lechner og hægt að panta á fontshop.de á þessum hlekk.


Takk fyrir þetta. En ég veit ekki hvort hægt er að ná í nógu marga til að spila spilið við. Ég þekki mjög fáa sem hafa þekkingu á leturgerðum. Margir segjast hafa áhuga en ef þeir hafa enga eða ranga þekkingu er ekkert gaman að leika við þá. Ég hef reynt þennan leik með nemendum mínum:
http://ifontgame.ilovetypography.com/
Góður fyrir sinn hatt: fyrir byrjendur.