Safari : Gluggastærðir

Þegar maður opnar nýjan glugga í Safari, Fire­fox eða hvaða rápara sem er, verður sá gluggi jafn stór og sá síðasti sem opnaður var.

Oft er sú stærð ekki hen­tug fyrir það sem maður er að fara að skoða. Það gæti líka verið að maður hafi af ein­hverri ástæðu verið búinn að minnka síðasta glugga heilmikð því hann hafi verið fyrir manni eða eit­th­vað álíka. Þá er bara að toga í hornið niðri til hægri og aðlaga nýja gluggann.

Ekki gleyma möguleikanum á að opna fleiri síður inn í sama glugga með því að nota sla­ufa + T eða halda niðri slaufu þegar smellt er á hlekk. En það er annað mál.

Fyrir þá sem nota vefinn mikið kostar það talsvert umstang að vera stöðugt að breyta glug­gastærðum. Þegar öllu er á bot­ninn hvolft eru það meira og minna sömu stærðirnar sem maður er að setja glug­gana í. Ein stærðin er kannski gluggi sem nær yfir allan skjáinn. Önnur kannski aðeins mjórri svo maður sjái út fyrir glug­gann og kannski líka aðeins styt­tri. Svo eru það kannski mjóir og síðir glug­gar sem sýna bara breidd ein­hverra síðna en langt niður. Og svo framvegis.

Afbragðs leið til þess að minnka þetta umstang er að vista uppáhalds glug­gastærðirnar sem maður í Book­marks­bar (Safari). Þá er hægt að breyta umsv­i­falaust á milli hen­tu­gra stærða. En hvernig er þetta gert?

Til að byrja með er sniðu­gast að fara í Book­marks (opna bókin efst í Safari) Velja þar Book­marks Bar og búa til nýja möppu með því að smella á hægri plúsinn undir dálk­inum Book­mark (Ekki vin­stri plúsinn undir BOOKMARKS). Köl­lum möp­puna ein­hverju lýsandi nafni til dæmis glugg eða size. Drögum möp­puna til þan­nig að hún komi næst á eftir bókartákninu.

Að því loknu eru þes­sar línur sem eru hér að neðan tek­nar og set­tar í adres­sulí­nuna á ráparanum, ein í einu og ýtt á Return eða Enter. Glug­ginn breytist sam­stundis. Ef stærðin er ekki hen­tug breytir maður tölunum í svi­gunum þar til allt pas­sar. Fyrri talan er breidd og sú síðari er hæðin. Þegar stærðin er orðin fín er slóðin „javascript: win­dow… “ dregin í möp­puna size. Þá er þetta orðið að bókamerki og ekki verra að breyta nú nafn­inu á því í stærðina sem merkið sten­dur fyrir, t.d. 800x600 eða Full Screen.

Eftir þetta eru allar uppáhalds glug­gastærðirnar aðgengi­le­gar úr Book­marks Bar. Ef ein­hver vill ganga enn lengra gæti hann sleppt því að hafa bókamerkin í möppu. Haft þau laus fremst í Book­marks Bar og þá virkar sla­ufa + 1, sla­ufa + 2 og svo framvegis til að hlaupa á milli stærða. En það er svoldið mikið bruðl á plássinu.

javascriptsafari

Þes­sir kóðar eru góð byr­jun á þessu stússi en munið að breyta tölunum eftir því sem hen­tar best.

Full Screen:

javascript:self.moveTo(0,0);self.resizeTo(screen.availWidth,screen.availHeight);

1024x768:

javascript:window.resizeTo(1024,768);

1800x1000:

javascript:window.resizeTo(1800,1000);

800x1200:

javascript:window.resizeTo(800,1200);

Share