Safari : Bókamerki á barnum – Bookmarks Bar
Allir sem á annað borð nota tölvur nota forrit eins og Safari meira eða minna allan daginn með öðru. Það er því ekki úr vegi að benda á nokkur atriði sem geta gert ráparann að enn skilvirkara tóli í verkfærakistunni. Það sem kemur hér á eftir miðast við Safari en á einnig við aðra rápara með litlum tilfærslum, eins og til dæmis Firefox.

Margir nýta sér Bookmarks Bar, línuna undir addressulínunni sem frábæra flýtileið á uppáhalds vefsíðurnar sínar. Þar sem vel flest vefföng eru nokkuð löng verður plássið fljótt búið. Athugið að þegar maður dregur veffang þarna niður opnast lítill gluggi þar sem birtir annað hvort slóðina í heild eða nafn síðunnar sem er verið að bókamerkja. Þarna gefst tækifæri á að búa til styttingu á nafni slóðarinnar. Í þessu tilfelli mætti þetta vera t.d. Errors. mbl.is – Fréttir er einfalt að stytta í mbl.is og þannig mætti lengi telja.
Ef búið er að fylla röndina með löngum slóðum og vilji til að stytta eftir á, er einfaldast að smella á merkið lengst til vinstri, opnu bókina og fara þannig í Bookmarks og breyta nafninu í dálkinum Bookmark eins og sést á efstu myndinni. Eins og sést á myndinni í atriði númer eitt, er ég að nota svona styttingar út í eitt. A hjá mér er apple.com, a+ er umræðuvefur apple.is/umraedur. Svo koma nokkrar flýtileiðir inn á font.is sem ég þarf mikið að nota. VTr er versiontracker.com og MU MacUpdate.com. Þannig mætti lengi telja en ég kem með þessu móti 35 slóðastyttingum á barinn.
Úr því við erum komin þarna inn í Bookmarks er upplagt að kíkja á nokkur önnur atriði sem geta bætt skipulagið og teygt notagildið enn lengra. Neðst í þessum glugga er lítið plúsmerki. Með því má gera sér möppur til að halda utan um hóp bókamerkja sem eiga eitthvað sameiginlegt. Þegar maður er með svona möppu í Bookmarksbar birtist lítill svartur þríhyrningur við nafnið eins og sést við númer 4. Inn í svona möppu getur maður svo dregið vefslóðir þar með greiður aðgangur að öllum slóðunum í þeim flokki.
Ef við skoðum þá atriði 2 og 3 sést að það er hakað við í númer 2 en ekki númer 3. Í númer 2 sést uppi í Bookmarks Bar að í stað svarta þríhyrningsins er kominn grár kassi. Hann þýðir að ef smellt er á það merki opnast allar síður í sitt hvorum flipa sem eru undir þessu merki. Ég nota þarna merkið √ (checkmark) fyrir þennan flokk, en þetta eru síður sem ég ætla að kíkja betur á þegar mér gefst tími til. Ef ég vil halda einhverjum af þeim síðum til haga kem ég þeim í rétta flokka og tappa af þessari möppu.
Í fimmta liðnum sést hluti af þeim flokkum sem ég vista öll bókamerki til lengri tíma. Sumir af þeim flokkum koma með forritinu en svo bætir maður því við sem við á. Vilji maður ganga enn lengra í skipulaginu getur maður dregið svona möppur upp í Bookmarks Bar og haft þannig beina tengingu í alla sína uppáhalds flokka.

