Vínútsala

Sú einkennilega staða er komin upp að vín og bjór kostar okkur meira í útlöndum en hér heima. Maður heyrir jafnvel að fólk sem er á leiðinni út sé að kaupa vín í fríhöfninni til að taka með sér í nesti.
En við sem heima sitjum getum glaðst í kreppunni miklu yfir einstakri útsölu á rauðvíni sem stendur til boða. Þetta er eftir því sem mér skilst önnur útsalan á víni sem ekki hefur komist úr reynslusölu yfir í kjarnann hjá áfengisversluninni.
Ég keypti mér ásamt öðrum tvo kassa í fyrra og í þetta skiptið kaupi ég fjóra kassa með þremur öðrum. Það er sem sé stór sniðugt að taka sig saman með öðrum og krækja sér í 5% aukaafslátt með því að kaupa í kassavís og skipta svo á milli. Passa bara að það slettist ekki upp á vínskápinn.
Svo er eitursnjallt að gerast áskrifandi að Vínpóstinum svo maður missi örugglega ekki af næstu útsölu – fyrir utan að fá upplífgandi upplýsingar um vín og vínmenningu.

