Mósaik úr myndum

Það er skemmtilegt tilraunaverkefni sem má skoða á þessari slóð. Valinn er litur af litaskala og kallaðar eru fram myndir af flickr sem eru í sama litatón.
Þetta er framtíðarmúsík sem gefur nýja möguleika á vali á myndum. Margir kannast við svona mósaik myndir þar sem maður hleður fyrst inn mynd og svo er ný mynd búin til með mósaíki af myndum með svipuðum litaskala. Þetta er angi af sama meiði og þessir aðilar bjóða upp á svipaðan möguleika, það er að leita eftir myndum í litaskala myndar sem maður hleður upp fyrst.
Flottir hlutir í gangi þarna.

