Lógósafn.is

logosafn

Allir sem starfa í auglýsingabransanum á ein­hvern hátt kan­nast við þes­sar endalausu sendin­gar á lógóum út um víðan völl.

Þetta er auðvi­tað sjálf­sögð þjónusta. Viðskip­tavinirnir eru að styrkja eit­thvert málefni, prenta boli eða að búa til skyg­gnur í Pow­er­point eða hvað veit maður. Oft er þetta vegna þess að viðskip­tavin­urinn er að reyna að komast hjá því að láta auglýsin­gasto­funa sína vinna tiltekin verk til að spara pen­ing, láta frænku sína fiffa vef­síðu fyrir sig eða að skil­t­agerðar­maðurinn ætlar bara að redda hlu­tunum. Eins getur verið að merkið verði ein­faldlega sett inn í umbrot á tímar­iti sem styrktarlína.

Hvernig sem sten­dur á lógósend­i­n­unni er það alltaf ein­hver vinna að finna til lógó og senda. Því hafa mar­gar auglýsin­gasto­fur sett upp verð fyrir þessa fyrirhöfn við mis­mik­lar vin­sældir viðskiptavina.

Það er margt sem gerir þetta ferli flókið. Í fyrsta lagi er á stærri sto­funum fyrst haft sam­band við tengil fyrirtæk­isins sem svo hefur sam­band við teik­narann eða jafn­vel verkef­nastjóra. Teik­nar­inn afgreiðir svo verkið og sendir. Teik­nar­inn fær ekki nærri alltaf upplýsin­gar um í hvað á að nota merkið svo að hann hefur tvo kosti: Senda merkið í fjór­lita vec­tor og sem bitmap jpg eða reyna að komast að því í hvað á að nota merkið. Sendi hann bara fjór­lita vec­tor er næsta víst að hann fái í hausinn að annað hvort geti kún­ninn ekki séð merkið (hann er nát­túrulega á pc og bara með Office tól) eða þá að þetta sé ónothæft því merkið eigi að fara í Powerpoint.

Hérna er ég alls ekki að gera stutta sögu langa. Hún gæti vel verið talsvert lengri.

Nokkrar leiðir eru færar til að gera þetta ferli þægi­le­gra og styt­tra en hvernig sem það yrði gert er alltaf ein­hver vinna falin sem ein­hver þarf að borga á endanum.

Viðskip­tavinirnir og auglýsin­gafólk ætti að íhuga alvar­lega einn nýjan kost í stöðunni sem á endanum ski­lar báðum aðilum miklu hagræði fyrir lítið fé.

Hér er ég að tala um logosafn.is Þar er hægt að senda inn lógó fyrirtæk­janna í öllum hugsan­legum útgá­fum. Ein útgáfa merkis t.d. Illus­tra­tor útgá­fan, með árs vis­tun kostar viðskip­tavininn 21.800 krónur og svo fer verð fyrir hverja aukaút­gáfu stiglækkandi og eins lækkar vis­tu­narárg­jaldið hlut­fall­slega. Í fles­tum til­fel­lum ætti að vera nóg að hafa Illus­tra­tor vec­tor útgáfu í fjór­lit og aðra í RGB og pakkaða sem jpg.

Ég er búinn að skoða þetta aðeins og gera athugasemdir um það sem mér finnst að betur mætti fara og gera má ráð fyrir því að með tíð og tíma þróist verkefnið og verði mun betra. Ef vel tekst til og fyrirtæki hópast inn með merkin sín til að spara fé og fyrirhöfn gæti þetta orðið afar gagn­legt og skemmtilegt.

Möguleikar með svona safn eru ekki bara fól­gnir í spar­naði og minni fyrirhöfn. Með því að hafa, segjum öll merki landsins inni opnast möguleiki á að þarna myn­dist sögusafn líka. Höfun­dar merkja tilgreindir, ár hön­nunar, upp­byg­ging leitarorða svo sem eftir lit og lögun, greinum eða öðru. Bara til að nefna fátt eitt.

Á mínum ferli í þes­sum bransa man ég eftir tveimur tilraunum til að mynda svona lógósafn. Af hverju það gekk ekki veit ég ekki alveg en mig min­nir að hluti af skýringunni hafi verið sá að þar var ætlast til að auglýsin­gasto­furnar borguðu brúsann og eins var verkefnið svo sem ekki sérstak­lega vel kynnt. Eins var það og er enn staðreynd að lógómálin eru ekki alltaf í góðu standi hjá sto­funum, mar­gar útgá­fur í gangi og utanumhald ekki sem skyldi.

Ég vona svo san­narlega að þetta gangi í þetta skip­tið enda augljós met­naður í gangi. Tæk­ifærið er frábært í ládeyðunni núna að taka til í þes­sum málum og koma viðskip­tavi­n­unum inn á þetta. Þeir ættu að gleð­jast yfir kost­naðar­lækkuninni og minnkaðri fyrirhöfn.

Share