Villu-Púkar á Makka

stafsetning08

Stafset­ningarvil­lur eru lúmsk kvikindi og ekki skrítið að fyrir­bærið tengist púkum, t.d. Villu-Púkum.

Sökum smæðar íslen­sku þjóðarin­nar og ekki síður smæðar Makka markaðarins var lengst af ekki um auðu­gan garð að gresja í hjál­partækjum púkalíf­sins. Á seinni árum hefur þó ræst dálítið úr. Tvö for­rit veit ég um sem taka á þessu máli. Bæði eru ker­fis­læg, það er styð­jast við stafset­ningartólin sem koma með stýrik­erfinu. Það þýðir að maður þarf ekki að búast við að fá leiðrét­tingu á orðum sem skri­fuð eru í for­ri­tum eins og Adobe for­ritunum og ýmsum fleirum, en flest coca-skrifuð for­rit eru studd. Kíkjum aðeins á hver staðan er í þessu máli.


cocoaspellcocoAspell er makkaút­gáfa af Aspell og er ker­fis­lægt stafset­ningar­for­rit sem fáir hafa vitað um. For­ri­tið er Open Source for­rit og ókeypis. Eins og oftast um Open Source for­rit er Aspell samvin­nu­verkefni sem allir geta tekið þátt í sem vilja. Þan­nig koma orðasöfnin úr ýmsum áttum. Samkvæmt því sem mér sýnist er hægt að tengja 167 orðasöfn við for­ri­tið í dag og þar á meðal íslensku.

cocoAspell hefur þurft að setja inn á tölvurnar með aðs­toð Ter­mi­nal for­ritsins og hefur það verið meira en nóg til að fæla fólk frá því að setja það inn. Nú er að verða breyt­ing á því og cocoAspell for­ri­tið sjálft kemur með innset­ningar­for­riti. Tungumálaskráin er svo sótt á ftp-þjón og sett á sinn stað með berum hön­dum. Samt sem áður getur verið smá bras að koma þessu inn.

Til þess að flýta fyrir er hérna listi yfir það sem þarf að hafa, fyrstu tvær og svo þrjár aðrar fróðle­gar slóðir.

Heimasíða cocoAspell

Íslen­ska orðasafnið (FTP þjónn). Leitið að is og veljið nýjustu skránna.

Ter­mi­nal leiðbeiningar um innsetningu

GNU Aspell síðan

Tungumálal­isti



stafsetning Stafset­ning 2004
er stafset­ningar­for­rit sem Ste­in­grí­mur Árna­son (Muri), fyrrum starf­s­maður Apple á Íslandi/Humac hefur þróað. Eins og nafnið bendir til kom það út 2004. Nokkrar uppfærslur hafa komið af for­rit­inu og núverandi útgáfa er númer 1.0.5. Því miður virkar for­ri­tið ekki á Leop­ard og hefur maður því verið án þess í marga mánuði.

Þróun á útgáfu fyrir Leop­ard er komin af stað og allt bendir til að for­ri­tið muni heita Stafset­ning 08 (vonandi ekki Stafset­ning 09). Hægt er að fara á heimasíðu for­ritsins stafsetning.is og ná í for­ri­tið á meðan á þróun sten­dur. En til þess að fá það til að virka verður maður að hafa keypt Stafset­ningu 2004. Hægt er að ganga frá kaupum á síðunni og eins býður innset­ningar­for­ri­tið upp á að henda manni beint í kaupin.

Stafset­ningu 2004 (og Stafset­ningu 08) þegar það kemur út, er alger snilld að hafa um borð á tölvunni. Of langt mál er að fara að endur­taka alla kosti for­ritsins hér en best er að kynna sér möguleika for­ritsins á heimasíðu þess. Í stuttu máli er þetta stafset­ningar­for­rit sem allir sem hafa met­nað í að láta frá sér vil­lu­lau­san texta ættu að hafa í tölvunni sinni.

Ég hef notað það frá því það kom út, enda ekki stætt á öðru því ég var búinn að kvarta dálítið um skort að svona for­riti. Nú er ég kominn með pru­fuein­tak af Stafset­ningu 08 í gang og það lofar góðu. Ég veit að allt of fáir hafa keypt sér forritið.

Sem sten­dur (alpha 04) er komið
Leop­ard stuðningur
Intel stuðningur
Hraðari ræs­ing (tefur minna ræsingu á Finder)
Growl stuðningur
Fast User Switch­ing stuðningur
NeoOf­fice teng­ing
Vísir að Word 2008 tengingu

Eins og ég min­ntist á í Mol­unum myndi ég vilja sjá fleiri valkosti í verðlagningu. Verðið er nokkuð san­ng­jarnt en ég vildi sjá til dæmis möguleika á að geta haft for­ri­tið á borðvél og fartölvu samtímis án þess að þurfa að borga tvö­falt. Augljóslega nota ég tölvurnar ekki samtímis.


Share