It’s going to be bril­liant : Adobe Cre­ative Suite 4

acs4

Ekki er þetta nú fal­leg mynd eða típografía. EIt­th­vað sko­last til á netinu.

acs4litil Min­nis­miðinn á væn­tan­lega að líta út svona ein og hér á litlu myn­dinni. Hann er frá Adobe um að þann 23. sep­tem­ber mun fyrirtækið tilkynna form­lega um Adobe Cre­ative Suite 4.

Þetta eru stórtíðindi í sjálfu sér eða eins og þeir segja sjál­fir: It’s going to be bril­liant. Dreamweaver, Fire­works og Soun­booth hefur verið hægt að prófa að undan­förnu. Ég er að sjálf­sögðu miklu spen­ntari fyrir hvað Pho­to­shop, Illus­tra­tor og InDe­sign munu bjóða upp á nýtt en ekki eru mik­lar upplýsin­gar fáan­le­gar um það.

Fyrir svona þre­mur árum stakk ég upp á því við Adobe á Illus­tra­tor Fea­ture Request að bætt yrði við tóli, pensli sem virkaði öðru vísi en Brush gerir núna. Það er eins og burstarnir í Font­Lab. Hægt að pensla með lit og pen­sil­dræt­tirnir breyt­tust strax í path eða útlínur. Ef penslað væri yfir annað form samein­uðust þau strax.

Haft var sam­band við mig og ég beðinn um að útskýra nánar sem ég gerði. Í síðustu útgáfu, Illus­tra­tor CS3 kom vísir að þessu, nýja strokleðrið. Nú hef ég nokkuð góðar heim­ildir fyrir því að pen­sillinn komi í nýju útgá­funni CS4.

Ef ein­hver hefur áhuga á að fyl­g­jast með kyn­ningunni þarf sá sami að skrá sig á vefnum hjá Adobe .

Share