Hvað er klukkan?

screensaverpolar

Sumir fá aldrei nóg af skjáhvílum og bak­grunns­myn­dum á tölvurnar sínar og finnst ekki nóg það sem fyl­gir tölvunni.

Ég get ekki ekki neitað því að mér finnst gaman að prófa nýjar og flot­tar skjáhvílur. Samt enda ég yfir­leitt í gamla góða Flurry eða þá Word of the Day sem ég nota þessa dagana. Gallinn við mar­gar af þes­sum flot­tari, til dæmis sem sýna klukkuna er að tölvurnar þurfa að puða talsvert við að knýja þær áfram. Ef við það er svo bætt að 20 tommu skjár eyðir raf­magni á við 40w peru er nokkuð augljóst að það væri betri kos­tur að slökkva á skjánum meðan hann er ekki í notkun.

En ekkert ban­nar manni að prófa og ef við afsökum okkur með því að á Íslandi sé orkufram­leiðsla frekar umhver­fisvæn þá er gaman að kíkja á nokkrar skjá­varnir sem sýna klukkuna á sama tíma og þær hvíla skjáinn.

Á Mac Tips and Tricks er saman­tekt á nokkrum klukkuskjáhvílum sem eru athyglisverðar og vert að kíkja á. Sumar eru jafn­vel á mörkunum að geta kallast skjá-hvílur en til­gan­gurinn hel­gar meðalið eins og svo oft.

Share