Bindi og slaufur : 6 leiðir til að hnýta
Án þess að ég hafi gert á því vísindalega rannsókn held ég að notkun á bindum sé í lágmarki um þessar mundir. Svona fylgihlutanotkun með fatnaði kemur og fer. Þannig að það má allt eins búast við að það gusist yfir okkur fyrr en varir.
Reyndar finnst mér slaufur alltaf dáldið skemmtilegar og notaði þær þegar ég var smástrákur. Ekki svona fína eins og þessi á myndinni og meira að segja með svindl klemmu. Mér fannst slaufan á Andrési Önd alltaf flottust.
Það eru ekki margir hér á landi sem nota svona slaufur en það hefur frekar einkennt háskólamenn, skáld og hljóðfæraleikara og Guðjón Pálsson. Og svo auðvitað sérvitringa — þannig að ég ætti örugglega möguleika.
A true gentleman knows the difference between a half-Windsor and a Prince Albert knot.
Eitt er sem ég vissi ekki fyrr enn um daginn að það er hægt að hnýta bindi á fimm mismunandi vegu og heitir hver þeirra sínu nafni. Ég hef alltaf notað einu og sömu sem pabbi kenndi mér. Og slaufu, svona alvöru hef ég aldrei átt og hef ekki kunnað að hnýta. Eflaust eru margir í sömu sporum og ég.
Því er upplagt á taka smá æfingu á þessu eftir mjög skýrum leiðbeiningum sem Brooks Brothers hafa sett saman.

