Reiknivélin Calculator
Ég var eiginlega alveg viss um að hafa skrifað um reiknivélina fyrir löngu en var að komast að því að svo var ekki.
Ég verð alltaf var við það af og til að margir vita hreinlega ekki af því að þetta frábæra forrit Calculator er í Applications möppunni. Allir sem hafa ýtt á F12 á tölvunni sinni hafa séð reiknivélina appelsínugulu sem er þar. Handhæg og alltaf tilbúin (ef ekki skaltu prófa núna! fn F12 á fartölvum og nýju hnappaborðunum). En sú reiknivél kemst ekki í hálfkvist við Calculator forritið og ætti að mínu mati að vera í kvínni hjá öllum.
Það er alveg jafngóður tími núna eins og annar til að benda á Calculator þótt allt virðist vera að fara til fjandans með gengi og fjárhag. Það er nefnilega einn af góðu kostunum við þetta forrit að það reiknar á fljótlegan hátt út fyrir mann gengi gjaldmiðla og þar með talda krónuna okkar góðu. Það eru kannski að verða síðustu forvöð að umreikna hana?
Þetta er gert með því að slá inn erlendu upphæðina með talnaborðinu, fara upp í valseðilinn þar sem stendur Convert og velja Currency… Svo velur maður viðeigandi gjaldmiðil öðrum megin og þann sem á að breyta í hinum megin.
Eins og þú sást er undir Convert eru alls kyns aðrir möguleikar í boði við að breyta milli mælieininga svo sem þetta klassíska úr Farenheit í Celcíus, metrum á sekúndu í kílómetra á klukkustund og hvað eina.
Calculator er ekki bara ein reiknivél, heldur þrjár. Kíktu undir View eða smelltu á slaufa 1, 2 eða 3 og veldu þá reiknivél sem hentar þér best. Þá er líka hægt að láta Calculator tala ef maður endilega vill og til að toppa allt er hægt með slaufa + T (eða Show Paper Tape) að bæta við glugga sem sýnir allan útreikninginn eins og um gamaldags reiknivél með borða væri að ræða.

