Adobe Cre­ative Suite 4 – alveg að skella á

acs4exposed

Cre­ative Suite 4 frá Adobe er væn­tan­legt á fyrsta árs­fjórðungi 2009.

Eins og alltaf er búið að hlaða nýjungum í for­ritin og ég get illa beðið með að koma hön­dum á pakkann. Nýi burstinn sem ég var búinn að nefna og spáði fyrir verður í Illus­tra­tor og heitir Blob Brush.

Vefir hafa verið að fyl­last af lýsingum á hverju má eiga von á. Sú besta sem ég hef rek­ist á enn er hjá Cre­ative Pro en á ein­nig er ítar­leg lýs­ing á Illus­tra­tor á Real World Illus­tra­tor. Það er ljóst að Illus­tra­tor fær mikla yfirhal­ningu á mör­gum sviðum miðað við þessa lesningu. Sama má segja um flest hin forritin.

Útlit for­ri­tanna allra og samhæf­ing tekur stórt stökk og eins gott að fólk sé tilbúið að láta róta aðeins í sér.

Ég vísa bara á þes­sar síður til að lesa nánar um þetta allt saman frekar en að éta það allt upp og þýða. Þetta verður rosa gaman — ekki spurning.

Share