Lífið er kubbaleikur

Lífið er leikur… var það ekki annars? Enn einn leikurinn með letur gæti verið að smella sér á Fontstruckt síðuna sem Fontshop heldur úti.
Þar er hægt að leika sér út í það óendanlega með einföld form sem maður teiknar á grind. Býantur og strokleður og allt. Þegar letrið er tilbúið er orðið til alvöru letur sem hægt er að nota.
Þetta getur verið ágætis byrjun á löngum og farsælum ferli við leturhönnun. Það er ótrúlegt hve mikilli leikni margir hafa náð í að teikna með þessum tólum. Það má sjá með því að skoða það sem aðrir hafa verið að gera á Gallery síðunni.

En það er annað sem mig langar eiginlega meira að leika mér með. Það eru þessir flottu kubbar sem sýndir eru á síðunni Fubiz. Svipuð hugmynd í gangi og án aðstoðar internetsins eða tölvu.. Ef einhver veit hvar er hægt að nálgast svona kubba vil ég endilega heyra af því. Mér tekst ekki með minni takmörkuðu frönsku kunnáttu að finna út úr því sjálfur.

Viðbót: Ég fann síðu kubbamannsins Chris Clarke.

