Kort dagsins

nationalgeographic

Ég er ekki alveg laus við að vera hrifinn af lan­dako­r­tum. Reyn­dar, þegar ég hugsa út í það, hef ég áhuga á hvers konar upplýsin­ga­grafík. Vel útfærðar skýringamyn­dir með frét­tum og greinum og allt út í snjal­lar laus­nir á grö­fum sem útskýra þjóðarhag eða gengi – skýringamyn­dir sem segja meira en þúsund orð.

Tímarit eins og National Geo­graphic eru í miklu uppáhaldi hvað svona upplýsin­ga­grafík varðar. National Geo­graphic hel­dur úti veg­le­gri vef­síðu sem gaman er að kíkja á af og til. Kor­tasíðan er fín og hægt að grúska út í eitt þar. Einn skemmti­le­gur þát­tur Map of the day hóf göngu sína í byr­jun árs 2008. Á hver­jum virkum degi er varpað fram korti eða upplýsin­ga­grafík úr safni tímar­itsins ásamt lesningu sem á við þen­nan tiltekna dag.

Svo haldið sé lengra: Talsvert er til af efni á net­inu um alls kyns upplýsin­ga­grafík annarri. Hægt er að mæla með síðu sem fyl­gist með nýlegum og athyglisverðum útfærslum, Infor­ma­tion Aes­thet­ics.

Ein­nig lan­gar mig að benda á þessa grafík úr The New York Times, við­tal á Condé Nast Port­fo­lio, við einn af þeim sem gerðu grafið, Lee Byron og nokkur gröf á síðunni hans. Algert brill!

Share