Inquisi­tor : Leitað á netinu

inquisitor

Inqusi­tor er viðbót fyrir Safari eingöngu og er meiri hát­tar hjál­partæki fyrir þá sem nota netið mikið til að leita uppi upplýsin­gar. Ég hef notað í tvö ár eða svo og get varla hugsað mér að vera án þess. Það væri eins og að fara tvö ár aftur í tímann.

Inquisi­tor verður eins og hluti af Safari og í leitar­re­it­inum sést hvort viðbótin sé virk eða ekki. Þá sten­dur Inquisi­tor í honum með daufu letri.

inquisitor Þegar maður byr­jar að skrifa leitarstreng byr­jar Inquisi­tor að reyna að giska á hverju maður gæti verið að leita að og lítill fel­ligluggi opnast sem sýnir nokkrar lík­le­gar vef­síður. Þan­nig sparast að vera stöðugt að kalla fram leitarsíður sem kannski eru ekki með neinum gagn­legum tenglum. Þetta er eins og Spot­light fyrir netið.

Ef engin af þeim síðum sem Inquisi­tor stin­gur upp á er sú sem maður leitar að ham­rar maður á Enter/Return og ven­ju­leg niðurstöðusíða birtist í Safari. En ef Inquisi­tor kemur með réttu síðuna er hægt að velja hana og fara beint þan­gað. Inquisi­tor man líka hvort maður hafi heim­sótt síður og eru þær merk­tar sérstaklega.

Í Safari > Pref­er­ences er eru nokkrar still­ingar fyrir Inquisi­tor. Meðal annars hvaða leitarvél er notuð, Google US, Google IS eða Yahoo, svo nokkuð sé nefnt. Þó ekki íslen­skar leitarvélar.

Smá hliðar­spor: Eitt er sem gerist við að nota for­ri­tið er að maður lærir betur að leita rétt. Mar­gir hefðu gott af því. Ég get sem dæmi, séð hvaða leitarstren­gir verða til að menn koma á font.is og það er bísna fróðlegt að sjá. Hvert orð sem er sett í leitarstrenginn virkar eins og fil­ter. Dæmi um leit gæti verið: Hvar finn ég kín­ver­ska stafi. (Þetta er raun­verulegt dæmi.) Í stað þess væri betra að leita svona: kín­ver­skir stafir. Annars reyna leitarvélarnar að finna greinar sem inni­halda líka orðin finn, hvar og ég.

Inquisi­tor viðbótin er ókeypis og afar ein­falt að setja inn. Ná í hana, ræsa innset­ninguna, innset­ningin slekkur á Safari og kveikir á honum aftur og þetta er komið inn. Ómis­sandi viðbót.

Share