Fótósjopp dauðans

mybestfriendsgirl Ég á ekki myspace síðu, en á víst van­rækta Face­book síðu sem varð til þegar ein­hver (Tolli) sendi mér link um hvort ég vildi ekki vera vinur hans. Mér fannst enginn vafi þar um og síðan varð til.

Dane Cook, leikarinn þarna í miðjunni á hins vegar myspace síðu. Í færslu einni fjal­lar hann um veg­gsp­jaldið sem gert var fyrir myn­d­ina My Best Friend’s Girl, sem ég hef nú ekki séð. Hann er ánægður með kvikmyn­d­ina sjálfa en veg­gsp­jaldið fer svo í tau­gar­nar á honum að hann getur ekki orða bundist.

Fyrir þá sem kunna vel á Pho­to­shop er örug­glega gaman að vinna svona verk. Ég þekki reyn­dar einn sem gerir dáldið af bíó­plakö­tum og gerir það vel finnst mér (kíkið líka á letrið hans). Á ekki von á að hann hafi komið nálægt þessu.

Það lig­gur við að þetta sé kennslus­tund í því hvernig maður vin­nur svona veg­gspjöld í Pho­to­shop svo þau falli í kramið í Hol­ly­wood og er fróð­leg og skemmti­leg lesning.

Share