Auglýsin­gastærðir og skil á auglýsingum

newbutton2

Glög­gir lesendur hafa kannski tekið eftir því að það er kominn nýr hnap­pur á síðuna – AUGLÝSINGASTÆRÐIR. Það getur verið að ég breyti nafn­inu á hnapp­num síðar. Þetta er eit­th­vað svo langt orð. En það er annað mál.

Það sem sést á síðunni sem kemur upp er nokkuð augljóst. Listi yfir auglýsin­gastærðir tímarita og blaða á Íslandi. Samsvarandi listi, forveri þessa lista, var haldið saman af fyrrverandi sam­starf­s­manni, Mar­gréti Lud­wig og enn lifir í lis­tanum hluti af innslæt­tinum hen­nar. Kann ég henni bestu þakkir fyrir hugmyn­d­ina. Hen­nar listi var excel skjal en ég fékk leyfi hjá henni til að breyta honum í veflista. Síðan eru liðin nokkur ár. Listinn hefur því verið til lengi og aðeins það uppfært sem komið hefur upp á. Slóðin hefur hægt og rólega lekið út eins og gen­gur og er allt í góðu með það.

Ég ákvað fyrir skemm­stu að koma þessu lista opin­ber­lega í loftið og þá beint undir font.is. Ég sendi póst á öll net­föng á lis­tanum þar sem óskað er eftir því að þeir komi með athugasemdir, breytin­gar og nýjustu upplýsin­gar. Svör hafa verið að skila sér inn en nokkuð van­tar enn. Vonast er til að það geri það fljótlega en í anda auglýsingabransans gaf ekki mikinn tíma áður en ég sendi þetta í loftið.

Greini­legt er að eit­th­vað er enn inni af tímar­i­tum sem eru hætt eða hafa skipt um eigen­dur. En þetta kemur allt með kalda vatninu.

Í aftasta reit­num, Breytt set ég dags­set­ningu síðustu breytinga. Önnur merki þar verða meðan ég er að klára að uppfæra lis­tann. (S þýðir að ég hef sent út póst og R að viðko­mandi hafi svarað um að hann sé að finna þetta til. Restin af merkingunum þýða ekki mikiið fyrir aðra en mig.)

Að hafa svona saman­tekt á einum stað ætti að vera til hagræðis fyrir alla. Færri hringin­gar og póst­sendin­gar vegna þes­sara mála er þar fremst í flokki.

Ég vona að fólk njóti og láti berast út hvar þen­nan lista er að finna. Verið ekkert að prenta hann út því breytin­gar geta komið fyrir­var­alaust. Svo vona ég að allir taki þátt í að halda lis­tanum við með því að senda mér upplýsin­gar um hvers konar breytin­gar. Ég uppgöt­vaði t.d. nokkur tímarit sem ég hafði ekki hugmynd um meðan ég var að þessu.

Og eitt enn: Notið hnap­pinn til að fara á síðuna, ekki leit. Leit ski­lar inn síðunni allri eins og aðrar leitir, en af því hún er miklu breiðari en aðrar síður pas­sar hún ekki inn í lay­outið og fer allt í graut þegar síðan er sýnd þannig.

Svo fyl­gir nát­túrulega með sá fyrir­vari að ég ber enga ábyrgð á lis­tanum þótt ég reyni að hafa hann eins áreiðan­lega og unnt er.

Breytin­gar og viðbæ­tur má gjar­nan senda á mig á sigurarm@font.is

Share