AI : Dreift í hring

dreift01 Ég er oft spurður að því hvernig á að dreifa eða fjöl­falda hlu­tum jafnt í hring. Svarið er tiltölulega ein­falt en greini­legt að það lig­gur ekki í augum uppi svo við sku­lum kíkja aðeins á þetta mál.

Eins og sést á myn­dinni er þetta tiltölulega ein­falt form en þótt blet­tirnir séu ekki nema sjö getur tekið talsverðan tíma að dreifa þessu jafnt með handafli. Auðvi­tað geta þetta verið alls konar önnur form, myn­dir, stjör­nur eða eit­th­vað annað.

Hefst þá lýsingin:

dreift03 Fyrst teiknum við formið sem á að fjöl­falda svona í hring. Kveikjum á Rules, með sla­ufa + R.

Drögum því næst leiðar­línur út úr reglustikunni frá vin­stri inn í mitt formið. Drögum svo aðra leiðar­línu frá efri reglustikunni þvert á hina á þann stað sem hlu­tirnir eiga að snúast um.

Í mör­gum til­fel­lum gæti hugsast að gera þetta þan­nig að byrja á því að teikna fyrst hringinn sem allt á að snúast um og breyta honum í leiðar­línu með sla­ufa + 5. Þá græðir maður strax hringinn sem viðmið og líka miðju hringsins sem birtist sem dauft x.

Næst er valið Rotate tólið út verk­færa­palet­tunni. Það má gjar­nan venja sig á að hoppa á það með því einu að slá á stafinn R á happaborðinu.

Nú höl­dum við niðri Option/Alt hnapp­num og smellum með Rotate tólinu þar sem leiðar­línurnar skarast. Við þetta opnast gluggi sem gefur kost á því að velja hve mar­gar gráður við viljum færa hlutinn. Í mínu til­felli birtist sú tala sem ég notaði síðast við að snúa síðast á skjánum. En við setjum þarna tölu sem gen­gur upp í 360°. Tíu afrit gera 36°, fjögur 90° og svo framvegis.

OK hap­purinn færir hlutinn en Copy gerir afrit.

dreift04

En… teikningin sem er hérna efst er með sjö hringjum! Þá er að kveikja á Cal­cu­la­tor og finna út hve mar­gar gráður og gráðubrot þarf til að skipta 360 í sjö parta. Eða það sem er miklu, miklu sniðu­gra, að gera það svona:

Skrifa í reitinn 360/7 og smella svo á Copy. Illus­tra­tor reik­nar út fyrir mann að þetta séu 51,429°.

dreifa06

dreifa07 Þá erum við komin með teikninguna svona og nýji hlu­turinn er valinn. Hægt er að endur­taka leikinn eins oft og með þarf en það gæti orðið dálítið þrey­tandi ef við værum til dæmis með hun­drað hluti sem ættu að raðast svona í hring. Fyrir utan það að það er harla hæpið að við munum í öll skiptin hitta nákvæm­lega á miðjuna í hvert skipti. Leiðin­legt að vita af svoleiðis ónákvæmi.

Það sem bjar­gar deginum er skipunin sla­ufa + D, Dupli­cate. Hana endurtekur maður eins og þarf og ekki dónalegt að vita af því ef maður ætlar að fjöl­valda í ein­hverju magni að það má þá halda hnapp­num niðri og sjá hlutina þey­tast í hring.

Share