Ljósmyndir af bíleigendum

Á netinu er meira af ljósmyndum en maður kæmist yfir að skoða á heilli ævi.
Þess vegna er oft ágætt að fá ábendingar um vefi sem vert er að kíkja á. Ég treð hérna að smáræði sem mér finnst athyglisvert. Það er ljósmyndari sem heitir Matteo Ferrari. Ég hef ekki kynnt mér hvort hann er bíla-Ferrari, en að minnsta kosti hefur hann lagt sig eftir að mynda bíla og bíleigendur að einhverju marki.
Í þessu verki tekur hann myndir af fólki sem hefur átt sama bílinn í tuttugu ár eða meira og tekur mynd af eigandanum í sömu uppstillingu og er á gamalli mynd frá því að bíllinn var nýr. Mjög flott og verðlaunað.


Skemmtilegt.