Type­Con 2008

typecon Type­Con 2008 letur­ráðstef­nan verður haldin í Buf­falo, NY dagana 15. til 20. júlí næstko­mandi á Hyatt Regency hótelinu þar í borg.

Umfang ráðstef­nun­nar eykst ár frá ári. Sam­suða af vin­nusto­fum, fyrir­lestrum, umræðum, partíum upp­boðum og hver veit hvað. Þarna er hægt að hitta leiðandi fólk í bransanum, leturhön­nuði, letursér­fræðinga, grafíska hön­nuði, bókaút­ge­fendur og alls kyns að aðrar fígúrur.

Það er lík­lega dálítið seint að ákveða að fara núna en áhugasamir ættu að hafa augun úti varðandi þessa ráðstefnu því hún er árlega og flakkar á milli staða í Bandaríkjunum.

Ég fór á ráðstef­nuna 2000 (eða 2001?). Þetta var alveg ótrúlega gaman og ein­hvern tíma fer ég aftur. Ég kyn­ntist mör­gum sem ég er enn í sam­bandi við, sem eru oftast á þes­sum ráðstefnum og því skemmti­le­gra eru þær. En fróðleikurinn og stemmningin er það sem er aðal málið.

Ef ein­hver hugsar sér að fara mæli ég með því að vera á hótelinu sem ráðstef­nan er á, ekki vera að reyna að spara með því að vera úti í bæ eða heima hjá einhverjum.

Share