Allt að gerast …

hjalmur

Eins og fastir lesendur hafa orðið varir við hef ég verið að breyta útl­iti font.is síðustu daga. Grunnbreytin­gin er komin á en hitt og þetta mun brey­tast um leið og nýtt efni sko­last inn.

Mör­gum finnst ekkert gaman að láta breyta svona fyrir sér. Aðrir eru væn­tan­lega sát­tari. Ég á von á að breytin­gar­nar verði öllum til hags­bóta. Hugmyn­din á bakvið útl­i­tið eru hólf á fyrstu síðu sem eru eins konar gluggi inn í efni vefsins.

Talið að ofan er ljós­gráa sláin með fel­liglug­gum, ALMENNT, ENGLISH, LETUR og svo framvegis. Að velja af slánni kallar fram allt efni sem tilheyrir þeim flokki eða kategóríu á nýrri síðu, raðað í tímaröð. Eftir sem áður er líka hægt að nota leitar­re­itinn til hægri til þess að leita eftir ein­stöku leitarorði.

slain

Hólfin sem mynda svo aðal útl­i­tið sækja efni eftir fyrir­fram skil­grein­dum flokkum. Það er alveg hugsan­legt að það breytist eit­th­vað þegar fram líða stundir. Það kemur allt í ljós síðar. En í stuttu máli er nýjasta greinin í viðko­mandi flokki efst og svo hlekkir á næstu þar á eftir. Þan­nig gefst við fyrstu sýn yfirsýn yfir nýlegt efni í þes­sum flokkum. Ég á eftir að þýða eit­th­vað yfir á íslen­sku en þó ætla ég að leyfa sumu að standa áfram eins og það er.

Myn­dirnar sem eru núna setti ég sérstak­lega upp til bráðabirgða en ég þarf aðeins meiri tíma til að vinna upp þessa hugmynd. Þetta er núna tengt við Flickr sem ég hef ekki verið að nota hin­gað til en þetta er allt í burðarliðnum.

Ef ein­hver er hissa á því að ég skuli fórna heilu hólfi undir Eng­lish, eða greinar skri­faðar á ensku er ástæðan sú að heim­sóknir á font.is eru langflestar í þen­nan flokk. Það er sérstak­lega greinin um uppset­ningu á Font­Ex­plorer sem er vin­sæl. Vísað er á hana frá mör­gum öðrum vefsíðum.

YouTube hól­fið mun af og til skipta um mynd, en eins og sést er hægt að velja fleiri myn­dir til spilu­nar úr þessu hólfi.

Molar er svo nýr flokkur þar sem ég hef í huga að skjóta inn smá frét­tum og athugasemdum.

Þegar búið er að velja ein­hverja grein til frekari skoðu­nar breytist útl­i­tið aðeins. Greinin fær breiðan eindálk. Eldri greinar eru dálítið úr sko­rðum vegna þess en ég mun laga ein­hver­jar þeirra að þessu eftir því sem tími gefst til.

Við hliðina eru nokkur hólf sem eru til hægða­rauka fyrir noten­dur, fimm nýjustu greinar í lista, nýjustu innskot og síðast en ekki síst Tags sem ég er rétt að byrja að vinna í. Tags eru efnisorð á íslen­sku og stækkar og minnkar letrið eftir því hvað er mest notað. Ég á efir að fara yfir allar greinarnar og bæta við efnisorðum. Ég bið svo fólk að hika ekki við að koma með innskot spyrja út í greinar ef eit­th­vað er ekki ljóst, bæta við ef það veit betur eða annað.

Auglýsin­gahól­fið kom með þessu útl­iti og ég er ekki búinn að ákveða nákvæm­lega hvað ég geri við það. Heim­sóknir á vefinn eru ekki það mar­gar og efnið það sérhæft svo maður tali ekki um að tex­tinn er mest á íslen­sku þan­nig að ég á ekki von á að nokkur hafi áhuga á að setja inn auglýsingu hér. Enda er mér alveg sama í sjálfu sér. Hins vegar er ekki því að leyna að það væri ekki verra að fá ein­hver­jar tekjur á móti kost­naði og tíma sem fer í þetta stúss.

Það var aldrei hugmyn­din að selja auglýsin­gar inn á og ég bíst við að halda mig við það, nema helst til að auglýsa sjál­fan mig. En eins og sagt hefur verið á allt sinn verðmiða. Það eru til ein­fal­dar leiðir til þess að auka heim­sóknir á vefi en fyrst og fremst er það efnið og efnistök sem draga fólk að. Að skrifa um sjúkdóma, stjórn­mál eða mat er mun væn­le­gra ef maður vill fá fleiri heim­sóknir og tekjur.

En sem sagt, þetta er staðan í júnílok 2008. Ég er ánægður með stöðuna og vona að fleiri séu það. Takk fyrir innlitið.

Share