Bækur : Designing Type
Nafnið á þessari bók er dálítið villandi. Designing Type eftir Karen Cheng er ekki beint kennslubók í því hvernig á að hanna letur. Frekar ætti að líta á hana sem stúdíu á letri – samanburður á þekktum letrum.
Engu að síður er bókin flott og skemmtileg (afar afsætt hugtak). Fullt síðum af stórum svörtum stöfum og þeir mældir fram og til baka, kverkar og horn skoðuð. Þannig er bókin afar fróðleg ef menn hafa á annað borð gaman að skoða letur.
Ég er búinn að vera með þessa bók nálægt mér í meira en ár og ef einhver hefur áhuga á henni ætti sá sami að fara að huga að því að nálgast hana því það er víst ekki mikið eftir. Ég fékk mína í bókabúð Máls og menningar eða í Bókabúð Steinars í Bergstaðastræti en hef ekki séð þær lengi þar. Amazon.com er líklega vænsti kosturinn.

