ID : Hugsanleg lækning á hvimleiðu krassi
(Viðbót 01.07.2008: Villurnar sem talað er um í þessari grein lagast ef sett er inn stýrikerfi 10.5.4. Málið er sem sagt leyst.
Þeir sem vinna mikið á InDesign CS3 og eru jafnframt með stýrikerfið Leopard kannast eflaust við ýmsa kvilla sem voru ekki fyrir hendi í fyrri stýrikerfum.
Einkum eru það tveir gallar sem um ræðir. Sá fyrri og alvarlegri er að InDesign á til með að hrynja þegar eitthvað af þessu er gert:
Opna skjöl
Import og Place – tengja myndir, flytja inn texta
Export – búa til PDF
Vista
Prenta
Villan á rætur að rekja til svokallaðrar Navigation Service í Leopard og myndi teljast í verkahring Apple að lagfæra frekar en Adobe. Spurning hvort þetta hafi verið lagað í 10.5.3 sem kom út í dag? (Viðbót: Ekki lagaði í 10.5.3 nema að hluta)
Á meðan beðið er eftir lausn á þessu væri alveg óhætt að prófa eftirfarandi sem hefur gefist mörgum ágætlega:
1. Opnaðu nýtt skjal í InDesign
2. Smelltu á Print
3. Í prentglugganum sem opnast smellir þú á Printer… hnappinn
4. Í glugganum sem þá opnast velur þú PDF hnappinn og þar: Save as PDF…
5. Við þetta opnast enn annar gluggi sem heitir Save og þar smellir þú á Cancel
6. Svo er smellt á Cancel alveg þar til þú ert kominn út úr prentgluggunum

Ef þetta virkar hjá þér skaltu gera þetta alltaf strax eftir að þú hefur ræst InDesign, eða þar til þetta hefur verið lagað.
Hin villan er líka hvimleið og snýst um það að ef ýtt er á slaufa + H til að fela InDesign eða forritið falið með því að velja Hide í kvínni, verður InDesign algerlega óvirkt og við neyðumst til að þvinga endurræsingu á því. Margir kannast eflaust við þetta.
Í þessu tilfelli er alveg þess virði að prófa eftirfarandi:
Ræstu upp InDesign og á meðan forritið ræsir sig heldur þú niðri höppunum: Stjórn + Slaufa + Val + Shift (Control + Command + Option + Shift)
Við þessa er Preference skjali InDesign hent út og nýtt myndast. Skilti kemur á skjáinn sem spyr mann um það.
Önnur leið sem virðist alltaf virka er að slökkva á InDesign og fara í ~/Library/Caches/Adobe InDesign og henda öllu sem er í þeirri möppu. Ræsa svo InDesign og Hide ætti nú að virka sem skyldi.
Þetta hefur virkað fyrir marga og ef þú hefur ekki vanið þig af því að hætta að fela forrit ættir þú að prófa hvort þetta virki.


svo er eitt vandamál líka að þegar forritið frís að þá skilur það eftir sig hjálparskalið “.idlk” í sömu möppu og vinnsluskjalið og það er ávísun á frost og vesen næt þegar vinnsluskjalið er opnað. Eina ráðið er að henda þessu skjali áður en vinnsluskjalið er opnað, en oftast er það ekki nóg. þá á að ræsa forritið, þá byrtist eithvað búlsjitt um að uppdeita linka osf. þar skal smelt á “no” síðan skal hvitta í forritinu og síðan ræsa það aftur og síðan opna viðkomandi vinnsluskjal og hana nú!
…Harri