Apple : Útspýtihnappur

Útspýti­h­nap­purinn, Eject er notaður til þess að spýta út CD eða DVD diskum eins og allir vita.

ejecthnappur

En það er meira sem hann getur gert með aðs­toð annarra hnappa. Ég hef minnst á það áður hérna að með því að bæta við stjórnhnapp­num, það er, stjórn + Eject, getur maður fengið upp skilti sem býður manni að endur­ræsa tölvuna, svæfa hana eða slökkva á henni. Svo er um að gera að nota þá dálkhnap­pinn, Tab til að flakka á milli hnap­panna og samþykkja svo með því að slá á bil­stöng­ina, Space­bar.

slokkvatolvurestartskilti

Ef þetta þykir þægi­legt væri ekki úr vegi að min­nast á eina skipun í viðbót sem ég rakst á nýlega. Hen­tugt eða ekki, en þessi skipun, stjórn + skipti + Eject (Con­trol + Shift + Eject) slekkur á skjánum tímabundið, eða þar til ýtt er á ein­hvern hnapp eða músin hreyfð.

Hugsan­lega nýti­legt ef ein­hver kemur óvænt að manni þegar maður er í heima­bankanum eða eit­th­vað í þá áttina.

slokkvaskja

Share