AA : PDF eyðublöð – jafn­vel í Reader

formsgerd

Hið eitursn­jalla for­rit Adobe Acro­bat getur meðal mar­gra annarra hluta búið til eyðublöð (Forms) með rei­tum til að skrifa í eða haka við.

Hægt er að taka hvaða pdf skrá sem er og bæta ofan á hana rei­tum fyrir nöfn og heim­il­is­föng og því um líkt, sett inn línur, hnappa til þess að haka í og ýmis­legt fleira. Fyrir lengra komna gefst kos­tur á að setja inn reiti fyrir tölur og samtölur og svo má ekki gleyma að ef menn kunna eit­th­vað fyrir sér í Java Script opnast heill heimur af möguleikum.

Það væri óðs manns æði að ætla sér að kenna allt þetta hérna. Enda eru til fullt af bókum um þetta ef menn vilja kynna sér og svo auðvi­tað inter­netið. Eins er ekki úr vegi að kynna sér hvað for­ri­tið býður upp á í Help skránni (sla­ufa + shift + ?). Það er lík­lega besti staðurinn til að byrja á.

Í raun er alls ekki flókið að búa til ein­falt eyðublað og svo er bara að leita að upplýsingum um það sem á van­tar. Uppi í stikunni er líka hnap­pur til þess að koma manni af stað. Cre­ate New Form… leiðir mann af stað fyrstu skrefin.

formshnappur

Sem dæmi um ein­falda notkun, þá fær maður ein­staka sin­num pdf skrár í tölvupósti sem eru skön­nuð eyðublöð sem ætlast er til að maður prenti fyrst út, kroti á með penna og sendi svo með fax­tæki til baka. Þá er grá-upplagt að opna skjalið í Acro­bat og skutla inn glærum rei­tum inn á skjalið og fylla svo út. Senda svo skjalið til baka í tölvupósti. Kannski leti, en ég geri þetta iðulega svona.

Undir Tools val­blaðinu finnur maður tólin sem hægt er að setja inn og ein­fal­dast að fara neðst á blaðið og láta Acro­bat sýna þau á palettu. Hide/Show Forms Tool­bar.

formsvalmoguleikar

Lengst af gátu eingöngu þeir notað svona eyðublöð, fyllt þau út og vis­tað sem voru með fulla útgáfu af Acro­bat. Ekki þeir sem voru með Reader, ókeypis PDF lesarann. Það er lík­lega ein hel­sta ástæða þess að þetta er ekki orðið útbrei­d­dara af því að aðeins tak­markaður hópur gat nýtt sér þetta.

Nú hefur þetta breyst með tilkomu Acro­bat 8. Sá sem býr til svona eyðublað getur nú virk­jað heim­ild fyrir noten­dur Reader til þess að fylla út eyðublöðin og vista þau. Gefa þarf heim­ild á hvert ein­stakt eyðublað — ekki hægt að hafa for­ri­tið forstillt á það.

Aðgerðina framkvæmir maður þegar eyðublaðið er orðið tilbúið. Farið er í valblaðið:

Tools > Type­writer > Enable Type­writer Tool in Acro­bat Reader…

Þá er ekkert lengur að van­bú­naði að hefja framleiðsluna.

Share