Safari : Ein gagnleg skipun
![]()
Vefslóðir geta orðið merkilega langar. Að taka í músina og draga eftir slóðinni til að merkja hana svo maður geti slegið inn nýja vill verða þreytandi til lengdar.
Þá er gott að hafa í huga að með því að hamra á slaufu + L velst slóðin sem fyrir er og er þannig tilbúin til þess að leyfa manni að skrifa inn nýja.
Þessi sama skipun er í Firefox, Opera, OmniWeb – eflaust öllum vöfrum.


já, ég nota þetta alltaf.
Slaufa+L fyrir slóð og síðan Slaufa+Alt+F til að fara í vefleit.