AI : Hnappaskipanir
Ein besta leiðin til þess að flýta fyrir sér við tölvuvinnslu er að tileinka sér flýtiskipanir eða hnappaborðsskipanir. Ég birti hérna grein um hnappaskipanir í Illustrator CS2 fyrir tæpu einu og hálfu ári síðan. Það var kominn til að skoða þetta með tilliti til CS3. Ég fjarlægði gömlu greinina og set þessa í staðinn.
Ég bjó mér til nýja flýtiskipanaskrá sem hægt er að skipta yfir í í stað þeirrar sem fyrir er, Illustrator Default. Í þetta skipti reyndi ég að vanda aðeins meira til verka og reyni að láta þessar aukaskipanir þurrka sem minnst út eða breyta því sem fyrir var. En samt var óhjákvæmilegt að gera það á nokkrum stöðum. Nokkrir hnappar virka öðru vísi á íslenskuðu stýrikerfi og eru jafnvel óvikir.
Svona auka flýtiskipanir eru settar inn með því að fara í Edit > Keyboard Shortcuts … Þegar glugginn opnast stendur Illustrator Defaults á efri hnappnum og Tools á þeim neðri. Segjum sem svo að við séum að fara að setja skipun á Place… sem er undir File valseðlinum.
Við ýtum á Tools og breytum því í Menu Commands. Þaðan er farið í línuna sem stendur File og sú lína flett út. Þá blasir við Place… Smellum á miðja línuna undir Shortcut dálknum og ýtum svo á slaufa + E. Þar með er fyrsta skipunin komin inn.
Um leið og við breytum einhverju hérna breytist Illustrator Defaults hnappurinn í [Custom] sem þýðir að við þurfum að vista skipanasettið (Keyset) undir nýju nafni áður en við lokum glugganum svo skipunin haldist. Nafnið gæti til dæmis verið: IllustratorCS3-080407, (ár, mánuður, dagur) svo við sjáum hvenær það var búið til.
Eitt í viðbót: Í þessu tilfelli erum við að stela skipun sem er notuð annars staðar en er að mínu mati óþörf þar. Gulur aðvörunarþríhyrningur birtist og texti sem segir hvað er að gerast. Ef þetta er ekki það sem við viljum er best að smella á Cancel hnappinn og byrja aftur.

Nú ættu allir að geta hafist handa við að búa til skipanir. Á vinnustöðum þar sem margir eru að vinna í Illustrator er lang sniðugast að einn búi til nýtt skipanasett og deili því svo með öðrum. Einnig væri möguleiki á að ég veitti aðgang að mínu setti en samt væri gott fyrir alla áhugasama að prófa af eigin raun að búa svona lagað til.
Hér er svo lýsing á því sem ég bætti við og breytti. Ef einhverjum líst á þetta er upplagt að prenta þetta út til og hafa hjá sér meðan maður er að venja sig á að nota þessar skipanir. Ég þarf sjálfur að gera það, þar eð nokkrar breytingar eru í þessu síðan ég gerði skránna sem ég hef notað í ótal ár.
Þetta ætti að skýra sig sjálft, gráu fletirnir eru nöfnin á valseðlinum og bláu eru undirflipar. Appelsínuliturinn er svo skipunin sjálf.
File
Hér er það Place skipunin, bráðnauðsynleg til þess að fella inn myndir eða texta. Því miður er ekki hægt að samræma þetta við InDesign, en það er í raun InDesign sem hefði átt að apa þetta eftir Quark. Óskiljanlegt.
Edit
Find & Replace, gott að hafa þegar maður þarf að skipta út texta sem er út um allt.
Object
Hérna eru þó nokkrar sem er alger nauðsyn að bæta við. Í fyrsta lagi eru undir Arrange sem margir nálgast með því að nota hægri músarhnappinn. Það er bara einfaldlega miklu fljótlegra að nota hnappaborðið til þess að senda hluti fram og aftur. Plúsinn og mínusinn eru þessir á talnaborðinu.
Lock > Other Layers er ekki slæmt að hafa fyrir þá sem hafa tileinkað sér að skipta verkefnum upp í lög.
Outline Stroke og Offset Path nota ég sjálfur gríðarlega mikið af einhverri ástæðu.
Clipping Mask > Edit Contents er frábær skipun sem víxlar valinu milli myndar og maska. Þetta er hægt að nálgast líka í Control lengst til vinstri þegar möskuð mynd er valin.
Type
Með tilkomu Open Type verður maður að hafa fljótlega skipun til að kalla fram Glyph palettunna og loka henni aftur með sömu skipun. Find Fonts nota ég sjálfur heilmikið þegar eitthvert leturrugl er í gangi. Ekki verra að hafa þessar skipanir til taks, sem meira að segja er hægt að gera með annarri hendinni.
Select
Next Object Above og Below eru dálítið úreltar en ég hélt þeim inni samt finnst þær voru þarna. Það er í raun miklu einfaldara að eiga við þetta í Layer palettunni sjálfri. Hins vegar er Select > Same > Fill & Stroke, Fill Color og Stroke Color alger nauðsyn á hverju heimili til þess að finna sömu liti og samræma.
Select > Object > Text Object er sömuleiðis vanmetin aðgerð. Þetta nýttist mér t.d. við að búa til þessar myndir. Gat valið allan texta með þessari einföldu skipun og læst honum meðan ég var að jafna stærðina á flötunum fyrir aftan.
Filter
Apply Last Filter. Autt af því að þarna stal ég slaufa + E af til þess að geta notað í Place skipunina.
Create > Crop Marks. Gott að hafa hnappaskipun á þessu.
View
View > Hide Edges. Þessi skipun er óbreytt en ég setti hana með hérna bara til að minna á hana því að ég held að ég sé ekki spurður um neitt meira en þetta. Þessi skipun virkar þannig að t.d. texti er valin, slaufa + H og þá er textinn ekki svertur. Eða t.d. kassi valinn, slaufa + H og þá sést ekki að kassinn sé valinn.
Þetta er mjög þægilegt að nota oft á tíðum, en fólk er oft að furða sig á að ekkert veljist en þá er það vegna þess að það hefur óvart slegið á slaufa + H.
View > Guides > Hide, Lock og Clear Guides. (Hint: gÆds). Nauðsyn að hafa þessar flýtiskipanir.
Snap to Grid eða Point og Show Grid setti ég inn líka.
Window
Window > Document Info. Í þessari palettu eru feykilega miklar og góðar upplýsingar um skjalið sem maður er að vinna í. Upplýsingar um letur, liti, tengdar myndir og margt fleira. Ég hef þessa palettu alltaf opna í hverju sem ég er að vinna í og ef ég er að vinna í skjali sem einhver annar hefur byrjað á er þetta eitt það fyrsta sem ég kíki eftir.
Að síðustu eru skipanir sem ég setti í Tools. Skipti yfir í Tools þar sem nú stendur Menu Commands. Neðarlega í listanum þar stendur Opacity nokkrum sinnum og prósenta fyrir aftan. Skipanirnar sem ég set þar eru einfaldlega á talnaborðinu, einn fyrir 10% og upp úr og núll fyrir 100%. Enga aðra hnappa þarf með.
Það sem þetta gerir er að breyta Transparency eða Opacity á litum í prósentum.

