RAL litir og önnur skondin litakerfi

Að snúa RGB litum yfir í CMYK er þekkt staða. Það væri hægt að skrifa endalaust um það mál og ég hætti mér ekki út í það í bili.

En það eru til fleiri litak­erfi. Pan­tone, eða Pan­tone Match­ing Sys­tem er eitt af þeim sem við þekkjum í tenglum við prentverk. Önnur litak­erfi sem hugsan­lega gætu rekið á fjörur okkar eru NCS sem gjar­nan er notað í húsamál­ningu og svo RAL sem líka er notað fyrir mál­ningu og lökk og ein­nig oft í litum á plasti.

Þetta eru aðeins örfá af þeim fjölmörgu litak­er­fum sem standa til boða, en þau sem einna lík­le­gast er að bið séum beðin um að vinna með. Beiðnin hljó­mar ein­hvern veg­inn svona: „Fyrirtækið í Þýska­landi sem er að mála einkaþo­tuna mína verður að fá fyrirtæk­islitina í RAL, hvað sem það þýðir…“

Hér er tiltölulega aðgengi­leg leið til þess að verða við þes­sari beiðni hvort sem um er að ræða CMYK eða Pan­tone lit sem á að snúa.

Byr­jum á því að opna nýtt CMYK skjal í Illustrator.

Búum til kassa sem við litum í Pan­tone lit fyrirtæk­isins. Liturinn má alveg eins vera í CMYK.

Nú brey­tum við skjal­inu yfir í RGB. Þetta er gert með því að fara í File > Doc­u­ment Color Mode > RGB Color.

Nú snýr maður Pan­tone lit­num yfir í RGB liti með því að smella á litla litakas­sann yst til hægri.

RALlitir

Þá fáum við RGB litag­ildi litarins.

RALlitir2

Þá er að koma sér á netið. Förum á síðuna EasyRGB.com

Á þes­sum fleti fyl­lum við út með RGB gildunum, höfum RAL valið og smellum svo á hnap­pinn Match.

VIð þetta verður til gluggi sem sýnir hversu nálægt RAL litur kemst og eins næstu möguleikar við hliðina.

RALgluggi2

Það er svo ágætt að taka skjámynd af glug­ganum sem birtist og líma hann inn í Illus­tra­tor skjalið til samanburðar.

RalMatch-ai

Share