Leopard 10.5.2 og FontExplorerX virka ekki alveg saman
Í gærkvöldi kom uppfærsla á Leopard upp í útgáfu 10.5.2. Þetta er risauppfærsla sem lagar ýmis smávandamál og einnig sértæk vandamál sem kanski örfáir hafa lent í.
En ekki er sopið kálið … Mér finnst rétt að benda á að eftir að fjölmargir póstar hafa verið settir á netið síðan uppfærslan birtist þessa efnis að þessi uppfærsla er sett inn myndast árekstur ef FontExplorerX er látið ræsast með tölvunni.
Þetta lýsir sér þannig að Adobe forritin svo sem Illustrator og InDesign og jafnvel einhver fleiri ná ekki að ræsa sig ef FontExplorer er ræst á undan.
Bakdyraleiðin er að láta FEX ekki ræsast sjálfkrafa í upphafi en keyra upp þau forrit sem maður ætlar að nota fyrst. Ef maður þarf svo í miðjum klíðum að ræsa eitt í viðbót, slekkur maður á FEX og ræsir svo aftur þegar forritið er komið í stand.
Vonandi lagar Linotype þetta snarlega. Í millitíðinni er þetta aðferð sem virkar. Svo gætu menn hugsað sér jafnvel að nota innbyggðu FontBook sem fylgir stýrikerfinu en það forrit er orðið vel brúkhæft en býður ekki upp á eins fína möguleika við að stjórna letrinu.
Uppfært: Linotype er búinn að senda út uppfærslu sem lagar þetta vandamál. Farið undir Check for update …

