Skyn­diskoðun á letri með Quick Look

Apple.com hel­dur úti síðu þar sem tal­dar eru upp hel­stu atriði sem þeir vilja vekja athygli á í útgáfu 10.5, Leop­ard.

Ég er rétt byr­jaður á að kíkja á þessa síðu en þar gefur að líta gríðar­legan fjölda nýjunga og betrum­bóta. Síðan er með meira en 300 atriði ekki komast fyrir í kyn­ningarmyn­dskeiði. Og samt er ekki allt upp talið.

Eitt af því sem ekki er minnst á beinum orðum er hversu frábært leturskoðu­nartól Quick Look er. Quick Look er eins og fle­stir vita eða munu komast að flýtitól til þess að kíkja snarlega á myn­dir, pdf skjöl og kvikmyn­dir og hvað eina. Snilldin í Quick Look er að það kíkir inn í skjölin ef svo má að orði komast. Það er, nær sér í upplýsin­gar til þess að búa til flotta forsýn (Preview).

Quick Look er virk­jað með því að velja skjal sem á að skoða og

  • hægri smella á músinni og þar á Quick Look
  • fara í File>Quick Look
  • smella á sla­ufa + Y eða það sem er lang fljótlegast:
  • smella á bil­stöng­ina, Space­bar

Svo frábær­lega vill til að þetta gildir líka um letur. Letur, hvort sem er skjále­tur eða prentle­tur er valið og ýtt á bil­stöng­ina og forsýnis­gluggi opnast sem sýnir hvernig letrið lítur út. Þen­nan glugga er hægt að stækka eins og skjárinn leyfir.

quicklook

Glug­ganum er svo lokað með því að smella aftur á bil­stöng­ina. Ef skoða á fleiri útgá­fur af letrinu er ein­fal­dast að nota pílurnar á hnap­paborðinu til þess að færa sig á milli, rétt eins og maður færir sig á mil­lli mynda. Það væri nú frábært ef hægt væri að ráða hvaða stafir eru sýndir.

iconpreviewfontFyrir utan þetta hefur verið sett í Leop­ard sá eigin­leiki að íkonar sem ekki hefur verið skipt út af notanda sýna núna forsýn af tveimur stö­fum, oftast A og g (Ag). Ætli væri hægt að hakka þetta og láta sýna ðþ ? Það gæti verið hen­tugt. Athugið að skilja verður glug­gann eftir opin í smá stund áður en teik­nunin byrjar.

Að sjálf­sögðu er hægt að stækka tákn­myn­dir letursins eins og hver önnur íkon alveg upp að 128 punktum.

dalkaviewfonts

Share