AI : Glí­man við Over­print úr Free­Hand skjölum

overprint
Ég var búinn að skrifa dálítið um Over­print áður hérna. Meðal þess sem ég min­ntist á þar eru þessi van­dræði sem fyl­gja því þegar skjölum úr Free­Hand er snúið yfir í Illus­tra­tor.
Vandinn er fyrst og fremst fól­ginn í því að segjum letur sem sem er kannski svart í Free­Hand skjal­inu kemur yfir í Illus­tra­tor og er þá með Over­print á, sem er alveg sak­laust. Svo er letrinu breytt í hvítt kannski af því það lig­gur ofan á mynd, sést á skjánum en prentast ekki út í fínni pren­tu­rum. Mjög erfitt að vara sig á þessu.

Mar­gir hafa að undan­förnu verið að skipta úr Free­Hand yfir í Illus­tra­tor eða jafn­vel oftar yfir í InDe­sign. Eiga kannski fullt af eldra Free­Hand efni sem þarf að nota áfram og þá er voðinn vís.

Ég var að skoða þetta mál frekar og held að þetta gæti komið að notum:

overprintpreview
Í fyrsta lagi er nauðsyn­legt að vera alltaf með Over­print Pre­view á í Illus­tra­tor. Í CS3 er hægt að stilla þan­nig að öll ný skjöl séu með þes­sari still­ingu á. Í eldri útgá­fum þarf að setja þetta á í hvert skipti.

attributes
Í öðru lagi að hafa Attrib­utes pan­elinn alltaf tiltækan, en hann sýnir Over­print á Fill og Stroke.

textobjects
Í þriðja lagi er snjöll skipun í Select > Object > Text Objects. Hún velur aðeins texta, hvort sem hann er á streng eða í textaboxi. Með því að nota þessa leið getur maður valið allan texta eingöngu og tekið Over­print af í einu vet­fangi í Attrib­utes panelnum.

WOD
Í fjórða lagi er hægt að nál­gast á net­inu ókeypis viðbót, Plug-in, við Illus­tra­tor sem heitir White OP Detector_CS3. Viðbótin finnur allt Over­print sem er í skjali sem er opnað en svo verður maður að hand-breyta sjál­fur því sem breyta þarf. Leiðin­dasp­jald birtist sem tilkyn­nir að allt sé í lagi eða ekki í hvert skipti sem skjal er opnað, en hægt er að losna við það með því að kaupa þessa viðbót fyrir 7 dol­lara.
Á sömu síðu er hægt að kaupa WhiteOP2KO_CS3 sem gen­gur lengra, finnur Over­print og tekur það af ef maður óskar þess. Óhætt er að taka undir það með þeim sem bjó þetta til að þessi viðbót bor­gar sig upp í fyrsta skipti sem hún finnur villu.

overprintscript
Í fimmta lagi er hægt að nota eigin­leika í Illus­tra­tor sem reyn­dar er búinn að vera fyrir hendi síðan í útgáfu 10, en það er að nota skriftu, Scripts. Skrif­tur standa til boða ókeypis víða á net­inu. Ég er með eina sérstak­lega í huga. Skrif­tan heitir Overprint_Search.js og er á vef­síðu pictrix.jp. Þessi skrifta finnur og breytir Over­print í skjal­inu, býður líka upp á að breyta þótt hlu­tir séu læstir en gefur ein­nig möguleika á að skoða bara og breyta engu.
Ekki láta hug­fal­last af japön­skunni sem birtist á síðunni þar sem skrif­tan er. Halið bara niður þar sem sten­dur neðst á síðunni OverPrint_Searchzip. Hún er sett í: /Applications/Adobe Illus­tra­tor CS3/Presets/Scripts.

Svo er hún keyrð af stað í: File>Scripts > Over­print Search eftir að Illus­tra­tor hefur verið endurræstur.

Farið verður nánar í notkun á skrif­tum í sérstakri grein um skriftur.

Share