AI : Hlutasnið
Ég sest niður við tölvu einhvers annars nánast hvern einasta dag. Oft er þetta vegna einhvers sem þarf að hjálpa með eitthvað í Illustrator.
Eitt af því sem ég tek eftir — en pirrar mig ekkert sérstaklega þó — er að ég sé að annað hvort hafa viðkomandi ekki lesið það sem ég hef verið að skrifa hér eða þeir sjá engan tilgang í því sem þar stendur. Þetta á til dæmis við um vinnusvæðið, panelana og það allt, sem að mínu mati er mikilvægt en greinilega eru sumir á annarri skoðun.
Hjá ansi mörgum eru panelarnir út um allt og óreglulega upp raðað og sumir eru á bak við aðra og sjást ekki svo maður þarf að fara í Window og slökkva á panelnum sem maður leitar að og fara svo aftur og haka við hann svo hann sjáist.
Vera má að þetta sé allt saman í rosa fínu kerfi sem ég er bara ekkert inni í en að minnsta kosti finnst mörgum óþægilegt að ég sé að færa panelana til, loka sumum eða kveikja á öðrum — af því vinnusvæðið er ekki vistað og allt þarf að færa til handvirkt. Allt um það hvernig hægt er að vista stöðu panelanna, svo ég eða aðrir séum ekki að eyðileggja daginn fyrir viðkomandi er hér.
Annað sem ég tek líka eftir er að það má telja á fingrum annarrar handar þá sem hafa panelana Appearance eða Graphic Styles opna. Ég nefni þá báða í sömu andrá, því þessir tveir panelar vinna náið saman.
Graphic Styles panellinn kemur með nokkrum tilbúnum hnöppum sem út af fyrir sig gagnast líklega ekki mörgum. Prófið bara að teikna upp til dæmis kassa og meðan hann er valinn, smella þá á einhvern af hnöppunum þarna. Sennilega hafa flestir gert þetta fyrst þegar þeir sáu þetta og eftir að hafa prófað alla hnappana, lokað Graphic Styles sem gagnslausum óþarfa.
Ef maður hefur þennan fyrrnefnda kassa virkan og opnar Appearance panelinn er hins vegar hægt að skoða hvernig þessir Graphic Styles eru uppbyggðir. Graphic Styles er nefnilega geymsla fyrir það sem maður býr til með Appearance panelnum svo maður geti notað það sama aftur og aftur.
Málið snýst nefnilega um það að Appearance palettan er gríðarlega öflug og með henni er hægt að búa til ýmis konar útlitshluti sem að öðrum kosti myndu þýða mun meiri vinnu.
Á síðu Adobe er ágætis stutt myndskeið sem sýnir nokkra möguleika við notkun og það sem er merkilegast er að það kemur í ljós að Graphic Styles getur eftir allt verið ansi hreint gagnlegt. Kíkið endilega á þetta myndskeið.
Það er of langt mál að fara að skrifa um þetta allt hérna eftir að hafa séð þetta myndskeið. En mig langar bara að fara í gegnum smáræði hvernig hægt er að nota þetta. Virkar samstundis við að gera næsta götukort.
Hvítar götur með svartri útlínu

Svo við byrjum alveg á byrjunarreit er hérna mynd af Appearance panelnum eins og hann lítur út þegar Illustrator er opnaður. Sést að Fill er hvítt og Stroke er svart. Kemur ekki á óvart. Í þessu dæmi ætla ég að búa til hvítar götur með svartri útlínu og þarf því enga fillingu.
Setjum Fill í engan lit. Þetta er hægt að gera á nákvæmlega sama hátt og við notum við alla litun í Color panelnum – eða þá með því að slá eitt smell á deilingarmerkið /.

Teiknum einfalda línu sem verður fyrirmynd að götunum. Hún er þá svört til að byrja með. Setjum hana í 12pt þykkt. Þetta endurspeglast í Appearance panelnum.
Veljum nú Stroke í Appearance panelnum.

Í hliðarvalblaðinu, Fly Out Menu er farið í Add New Stroke. Þetta er sýnt í myndskeiðinu. Önnur svört lína myndast í Appearance panelnum. Hún er jafnþykk og sú fyrri og í sama lit þannig að við sjáum enga breytingu á skjánum.
Veljum nú nýju línuna, efra Stroke, í panelnum og breytum línuþykktinni í 8pt. Breytum litnum í hvítan.
Á skjánum sjáum við að við erum komin með þessa líka fínu svörtu samsíða línur vegna þess að hvíta línan liggur ofan á, aðeins þynnri.

Næsta mál á dagskrá er að vista þessa samsetningu með því að draga línuna sem er á skjánum inn í Graphic Styles. Nú er þetta farið að hafa einhvern tilgang. Við getum núna teiknað götur fram og til baka eins og okkur lystir með einföldum línum og með þær valdar smellt á nýja útlitshnappinn í Graphic Styles og línurnar verða allar eins, samsíða svartar línur.

En, hvað þá með gatnamótin, þar sem linurnar skerast? Það er leyst með smá brellu:
Línurnar eru allar valdar saman. Þá er farið í Object > Compound Path > Make. Við það sameinast línurnar og eins og hvítu línurnar liggi allar ofan á hinum svörtu.

