Umslög

200708062336
Fyrr eða síðar þurfa öll fyrirtæki að láta hanna fyrir sig umslög. Umslög eru afar fjöl­breytt flóra, mar­gar mis­mu­nandi stærðir og gerðir.
Ein­fal­dast er þegar þarf að hanna umslög í þes­sum algengu stærðum að fara inn á heimasíður prentsmið­janna og ná sér í fyrirmynd þar. Ég kíkti á nokkrar heimasíður þeirra og fann í fljóthei­tum þes­sar upplýsingar:

Prentsmið­jan Oddi
Oddi er með fína tækni­up­plýsin­gasíður og býður upp á niðurhal á stön­sum af möp­pum, cd hul­strum og vec­torteikningum af umslögum. Umslö­gin eru í Free­Hand 9 og Illus­tra­tor sniði.

Svansprent
Svansprent er með laglega heimasíðu og undir liðnum þjónusta er að finna stansa af möp­pum og umslögum. Teikningar­nar eru í Free­Hand 8, sem er ekki alveg í takt við tímann. En það er hægt að pína Illus­tra­tor til þess að opna teikningar­nar með því að draga skjalið yfir á Illus­tra­tor tákn­myn­d­ina í Dock

Prent­met
Miðað við svona stóra prentsmiðju hefði ég átt von á aðeins meiru. Engir stansar eða umsla­gateikningar eru sjáan­le­gar á heimasíðunni en margt annað er gott þó undir Tækni­up­plýsin­gar. Það er til dæmis ágætt að vita hversu stór er hægt að prenta hjá þeim.

Guten­berg
Stansa og umslög er hægt að nál­gast á heimasíðu þeirra. Þetta eru sömu teikningar og Oddi er með enda í eigu sömu aðila.

Think
Think er með mál á pap­pír og umslögum en er ekki með teikningar til þess að hala niður. Ég set þá með hér vegna þess að heimasíðan er með gagn­le­gar upplýsin­gar meðal annars um pap­pírsþyn­gdir sem er einkar athyglisvert.

Umslag
Síðast og ekki síst er að nefna prentsmiðjuna Umslag sem sérhæ­fir sig í pren­tun umslaga af öllum stærðum og gerðum og íset­ningu efnis í þau. Umslag er með lang bestu upplýsin­gar­nar um umsla­gapren­tun og er það skyl­d­ulesning fyrir alla þá sem eru að pæla í að hanna á umslag. Heimasíðan er með teikningar af umslögum í Free­Hand 8 og Illus­tra­tor 8 sem auðvelt er að krækja í.

Share