PDF : Pdf úr hverju sem er

Eitt af því sem gerir það að verkum að mér líkar svo miklu betur við makkana en pc eru þes­sir innbyg­gðu pdf möguleikar.

Með þessu á ég til dæmis við þann eigin­leika að geta búið til pdf skrá úr hvaða skjali sem er í hvaða for­riti sem er svo fremi að for­ri­tið bjóði upp á pren­tun yfir höfuð. Eftir að maður áttar sig á þes­sum kos­tum fer það bara eftir hugmyn­daflugi hvers og eins hvernig hann nýtir þetta.

Sem dæmi um hvernig ég nýti mér þetta get ég nefnt að þegar ég er að ganga frá fer­ðum á net­inu, bílaleigu, flug­miðapön­tun og hótelum eða þá að að ég er að kaupa ein­hver­jar aðrar vörur – þá boðið upp á að prenta út kvit­tun eða staðfestingu í lokin. Þegar viðskip­tunum er lokið og kvit­tunin eða staðfestin­gin blasir við og boðið er upp á að prenta fer ég í Print… . Við það opnast þessi ven­julegi prent­gluggi sem allir þekkja. Í vin­stra horn­inu niðri hnap­pur sem á sten­dur PDF. Í stað þess að smella á Print hnap­pinn til þess að prenta vel ég PDF hnappinn.

Þegar stutt er á þen­nan hnapp bir­tast ýmsir áhugverðir valmöguleikar. (Athugið samt að það sem sten­dur á lis­tanum getur verið mis­mu­nandi frá notanda til notanda, eftir for­ri­tum sem eru á vélinni.)

En sem sagt, ég smelli á PDF hnap­pinn og vel þar: Save as PDF .

savetopdf2

Við þetta myn­dast pdf skrá sem ég ákveð í leiðinni hvar á að vis­tast. Þan­nig er ég kominn með pdf skrá sem ég get geymt á tölvunni, sent yfir á fartölvuna til að taka með mér í fer­ðalagið og prentað seinna ef ég þarf á að halda. Þægi­legt að geyma innan um önnur vel flokkuð gögn á tölvunni og hugsan­lega bjarga einu tré í leiðinni.

Þetta þýðir líka að ég þarf ekki að vera teng­dur við prentara meðan á þessu stússi sten­dur. Það er annar augljós kos­tur. Get bara setið með tölvuna í sófanum og svo framvegis.

Önnur not fyrir þetta sem ég get nefnt að það hafa komið upp til­felli þar sem ég þarf að koma Excel skjali, til dæmis skí­fu­riti úr Excel yfir í Illus­tra­tor. Excel ski­lar sínu dóti út í RGB litum sem er ekki gott fyrir prent. Og ekki er spen­nandi að taka skjámynd í 72pt upplausn hel­dur. Hún er líka í RGB litum. Þá er sniðugt að fara í Print… , velja PDF hap­pinn og vista sem pdf skrá. Hún opnast svo auðveldlega upp í Illus­tra­tor til frekari vinnslu í CMYK.

Share