Mail : winmail.dat viðhengi

Flestir kannast við viðhengi sem heita einfaldlega winmail.dat og koma í pósti frá Outlook notendum.
Mail les ekki þessi viðhengi. Ef maður reynir að opna þau í textaforriti kemst maður stundum að því að það er verið að senda manni fundarboð eða eitthvað slíkt en oftast er ekki mikið að græða á því sem maður sér þarna inni. Frekar þreytandi.
Apple er með síðu þar sem þetta mál er útskýrt að hluta og stungið er upp á því að haft sé samband við sendandann og hann beðinn um að breyta forminu á sendingunni. En gerir maður það? Vandinn er nú eiginlega okkar megin.
To avoid seeing these attachments in the future, you ask the sender to deselect the email’s “Send to this recipient in Microsoft rich text format” checkbox or preference setting in mail client before they send the message.
Ungur forritari í Austurríki hefur smíðað tól til þess leysa upp þessi winmail.dat skjöl. Þessi viðbót er OMiC. OMiC breytir meðal annars fundarboðum úr Outlook yfir í venjuleg iCal fundarboð, breytir heimilisfangaupplýsingum í skiljanlegt form og fleira.
Þessi litla viðbót er tvímælalaust gagnleg í blönduðu tölvuumhverfi og kostar ekki nema 10 evrur.

