Lit­brigði haustsins

pantonehaust
Maður þorir varla að segja það upphátt, en haustið er að skella á. Skólar að byrja, fólk streymir úr sumar­ley­funum, haustlægðirnar eru að fara að beygja upp að land­inu. Allt að verða eðlilegt aftur — eða þannig.

Það er ýmis­legt sem hægt er að gera til þess að falla ekki í tómt þung­lyndi. Til dæmis væri upplagt að kíkja á haustl­itina sem Pan­tone fyrirtækið spáir að verði rík­jandi í haust­tískunni. Reyn­dar er það svo að það þarf enga spá­menn í þetta. Allt saman löngu ákveðið í sam­ráði við tískufrömuði.

Annað sem ég mæli sérstak­lega með er að kíkja í kringum sig og skoða hvort eru ekki ein­hver endur– eða símen­ntu­narnámskeið sem hægt er að snara sér á. Hafa verður í huga að það er ekki bara hagstætt fyrir atvin­nurekan­dann að maður sé betur að sér í því sem maður fæst við, hel­dur er ekki síðra fyrir sálartetrið í manni sjál­fum að bæta við sig og reyna aðeins á sellurnar.

prenttaeknistofnun
Ég ken­ndi á námskeiði í fyrra. Mar­gir hafa nefnt við mig að þeir hafi ekki vitað af námskeiðinu og voru spældir að hafa ekki komið á það. Í því til­felli var námskeiðið á vegum Prent­tæknistof­nunar en þrátt fyrir að þeir sendi reglulega út pósta um námskeiðin er greini­legt að mar­gir missa af skilaboðunum.

Best er að byrja á því að skoða hvaða námskeið eru í boði og finna svo út hvernig er hægt að komast á póstlista. Sumir þyrftu jafn­vel að athuga hvort þeir eigi ekki ein­hverja ólesna pósta frá Prenttæknistofnun.

Sérstak­lega eru spen­nandi námskeið með Sandee Cohen og Ben Wilmore en ein­nig námskeið í Flash með Illus­tra­tor og Acro­bat námskeið. Ekki má hel­dur gleyma InDe­sign og Illus­tra­tor námskeiðunum hans Harra.

Það eru líka fullt af öðrum aðilum með námskeið um aðskil­jan­lega hluti, ekki endi­lega teng­dum grafíska geiranum. Endur­nen­ntun Háskóla Íslands, símennt Háskóla Reyk­javíkur, tölvuskólar og hvað eina. Það getur engu að síður verið upplyft­ing í því. Bara hafa augun opin.

Share