Draga íkona til og frá

dragicon

Allir þekkja tákn­myn­dirnar sem eru við hliðina á nafni skjalanna. Þes­sar tákn­myn­dir eða íkon eru til þess ætluð að segja manni í hvaða for­riti maður er að vinna. Það er ágætis mál því mörg for­rit líta svipað út.

En það er fleira sem hægt er að nota þær í. Í fles­tum for­ri­tum getur maður stutt á myn­d­ina og eða nafnið, haldið niðri slau­fuh­napp­num og þan­nig séð hvar á tölvunni eða netþjón­inum skjalið er statt.

All nokkur for­rit svo sem Acro­bat, Excel, TextE­dit og fjöldi annarra gefa líka möguleika á að styðja á íkoninn færa skjalið til á tölvunni. Með því að halda niðri Option er svo hægt afrita skjalið yfir á skjáborðið eða yfir í ein­hverja möppu sem á svo kannski að brenna, svo dæmi sé tekið.

Það sem er þó mag­naðast er að með þes­sum hætti getur maður dregið skjalið beint yfir í mail til þess að senda það, án þess að þurfa að rekja leiðina að skjal­inu eða að þurfa að loka því áður en það er sent.

Ég er búinn að prófa þetta í nokkrum for­ri­tum en er ekki tilbúinn með neina skrá hvaða for­rit leyfa þetta og hver ekki. En að geta gert þetta við pdf skjöl, hvort sem er í Acro­bat eða Pre­view er nóg til þess að gera mig ánægðan.

[Ég gerði smá breytingu á fyrri texta vegna ábendin­gar Kjartans.]

Share